Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, varaði Rússa við því í dag að flugskeytaárásir á Sýrland væru yfirvofandi, sem svar við efnavopnaárás á bæinn Douma. Rússar segja að árásum verði svarað.
Fjármálaráðherra segir að ef gengið yrði að kröfum ljósmæðra myndi það setja aðrar kjaraviðræður í uppnám. Í miðjum viðræðum hefðu þær lagt fram nýjar kröfur sem séu algerlega óaðgengilegar.
Dæmi er um að aðgerð á sjúklingi á Landspítalanum hafi verið frestað sex sinnum. Læknaráð spítalans lýsir yfir miklum áhyggjum af viðvarandi skorti á legurýmum á gjörgæsludeildum.
Ekki hefur verið upplýst hvað varð til þess að 257 manns fórust í Alsír þegar herflugvél hrapaði skömmu eftir flugtak.
Hvers vegna nást samningar ekki við ljósmæður? Arnar Páll Hauksson talar við Áslaugu Valsdóttur, formann Ljósmæðrafélags Íslands.
Frambjóðendur í Mexikó drepnir. Kristján Sigurjónsson segir frá.
Myglan herjar á dönskum söfnum. Borgþór Arngrímsson í Kaupmannahöfn segir frá.