Spegillinn

Spegillinn 11. nóvember 2020


Listen Later

Spegillinn 11. nóvember 2020
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Hrafnkell Sigurðsson
Forsætisráðherra segir að skoða verði málefni Arnarholts ofan í kjölinn. Hún segir málið bæði sláandi og óhugnanlegt.
Fjögur af þeim 26 smitum sem greindust í gær tengjast sama fyrirtækinu á Akranesi. Sex starfsmenn þar hafa nú smitast.
Líkur eru á að byrjað verði að bólusetja gegn kórónuveirunni í ríkjum Evrópusambandsins einhvern tíma á fyrstu þremur mánuðum næsta árs.
Tekist var á um hverjir hefðu forgang í bólusetningu fyrir svínaflensunni fyrir ellefu árum, segir fyrrverandi sóttvarnalæknir. Hann segir líklegt að svipaðri forgangsröðun verði beitt nú í kórónufaraldrinum.
Átta af hverjum tíu Bandaríkjamönnum telja að Joe Biden hafi sigrað í nýafstöðnum forsetakosningum. Donald Trump neitar að játa sig sigraðan.
Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Vesturlandi verður lögreglustjóri á Suðurnesjum og Grímur Hergeirsson, staðgengill lögreglustjórans á Suðurlandi, verður lögreglustjóri í Vestmannaeyjum.
Lengri umfjöllun:
Skýrsla OECD, Efnahags og framfarastofnunarinnar, á regluverki ferðaþjónustu og byggingaiðnaðar hér á landi, sem kynnt var í gær, hefur vakið blendin viðbrögð hjá Samtökum iðnaðarins. Í skýrslunni er lagt til að endurskoða í heild sinni löggjöf um löggiltar starfsgreinar. Taka eigi til skoðunar að draga úr reglubyrði fyrir smiði, rafvirkja, pípara og fleiri. Svo er beinlínis lagt til að afnema löggildingu bakara og ljósmyndara - þó erfitt sé að sjá beina tengingu þessara starfsgreina við byggingariðnað. Kristján Sigurjónsson ræðir við Björgu Ástu Þórðardóttur yfirlögfræðingi Samtaka iðnaðarins.
Framkvæmdastjóri Bónuss segir að talsverður munur sé á kauphegðun fólks nú en í fyrstu bylgju Covid. Viðskiptavinir séu ekki lengur að hamstra klósetpappír eins og gerðist í vor. Í Speglinum í gær kom fram að eftirspurn eftir hinum ýmsu vörum hefur aukist í Covid faraldrinum. Arnar Páll Huksson talar við Guðmund Marteinssson, framkvæmdastjóri Bónus, Sigurð Brynjar Pálsson,forstjóra BYKO og Arinbjörn Hauksson, markaðsstjóri Elko.
Í vikunni var greint frá því að bandaríski lyfjarisinn Pfizer og þýska líftæknifyrirtækið BioNTech væru vel á veg komin í rannsóknum á bóluefni gegn kórónuveirunni. Rannsóknir benda til þess að bóluefni þeirra verji níu af hverjum tíu fyrir COVID -19. Pfizer er með stærstu lyfjafyrirtækjum heims en BioNTech er ekki nafn sem hefur verið á hvers manns vörum fyrr en nú. Anna Kristín Jónsdóttir segir frá hjónunum Ugur Sahin (Úr Sjahín) og Özlem Türeci (Ötslem Türetsí) í Mainz sem stof
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners