Spegillinn

Spegillinn 11. október 2021


Listen Later

Spegillinn 11.október 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Rýmingu hefur verið aflétt að hluta vegna skriðuhættu á Seyðisfirði. Hættustig er þó enn í gildi og íbúar fimm húsa mega ekki snúa aftur heim.
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir hafa komið sér á óvart að Birgir Þórarinsson sem kosinn var á þing fyrir Miðflokkinn hafi boðið þingflokki sjálfstæðismanna krafta sína.
Skipt verður um forystusveit Kristilegra demókrata í Þýskalandi á næstu vikum.
Flaggað er í hálfa stöng í Borgartúni í Reykjavík í dag til að vekja athygli á að miklu fleiri karlar en konur stýra fyrirtækjum.
Um 320 þúsund manns hafa nú gengið að gosstöðvunum frá því að gos hófst 19. mars.
Kvikmyndin Dýrið er orðin tekjuhæsta íslenska myndin sem sýnd hefur verið í bandarískum kvikmyndahúsum. Tekjur af miðasölu í Bandaríkjunum um helgina námu yfir milljón Bandaríkjadala.
Ekki er lengur talin þörf á að takmarka æskulýðs-, íþrótta- og félagsstarf barna og unglinga á grunnskólaaldri á Akureyri.
Erfitt hefur reynst undanfarið að halda hita á sundlaug, heitum pottum, gufubaði og sturtum í sundlaug Hvergerðinga í Laugaskarði.
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Liechtenstein á Laugardalsvelli í kvöld í undankeppni heimsmeistaramótsins
Lengri umfjöllun:
Um 320 þúsund manns hafa nú gengið að gosstöðvunum á Reykjanesskaga frá því að teljarar voru settir upp við gönguleiðir skömmu eftir að gos hófst 19. mars. Heimamenn settu sig þá strax í stellingar. Þuríði Aradóttur forstöðukona Markaðsskrifstofu Reykjaness var í viðtali í Speglinum á fjórða degi í gosi og lýsti sinni sýn á hvernig bregðast skyldi við væntanlegum áhuga íslendinga og erlendra ferðamanna á gosinu. Nú eru tæpir sjö mánuðir frá því gosið hófst. Hvernig hefur til tekist? Kristján Sigurjónsson ræðir við Þuríði.
Þegar Bretar gengu úr Evrópusambandinu í ársbyrjun í fyrra var gerð sérstök bókun um Norður-Írland til að tryggja opin landamæri milli Írlands og Norður-Írlands í anda friðarsamningsins frá 1998. En blekið var varla þornað á gjörningnum þegar breska stjórnin fór að kvarta yfir að það væri ekki hægt að framfylgja bókuninni. Brexit er því ekki búið og nú er að hefjast ein atrennan til að leysa Norður-Írlandsvandann. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Gríðarlegt úrhelli sem veldur flóðum, hækkandi sjávarmál og hverskyns veðuröfgar. Þessara afleiðinga loftslagsbreytinga er þegar farið að gæta víða um heim. Í Svíþjóð ber sveitarfélögum skylda til að undirbúa varnir gagnvart komandi hamförum. En það er afar misjafnt hve vel það gengur. Kári Gy
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners