Greint er frá fjölmörgum nauðgunum og öðru kynbundnu ofbeldi og áreiti gegn íþróttakonum í yfirlýsingu og frásögnum sem hátt í fimm hundruð íþróttakonur sendu frá sér í dag.
Björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar eru við öllu búnir og aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins í Skógarhlíð hefur verið virkjuð vegna óveðursins sem nú geisar á Suður- og Vesturlandi. Byrjað er að draga úr storminum á Reykjanesi.
Ungur karlmaður lést í bílslysi á þjóðvegi 1, skammt vestan við Skeiðavegamót, laust fyrir klukkan átta í morgun.
Meirihluti landsmanna telur að stjórnvöld og íslenskir stjórnmálamenn geri of lítið til að takmarka gróðurhúsalofttegundir á Íslandi. Tæplega 60 af hundraði hafa áhyggjur af þeim afleiðingum sem loftslagsbreytingar geta haft. Um 87% landsmanna geta hugsað sér að kaupa rafmagnsbíl eða aðra bíla sem nota vistvæna orku.
Stafrænt líf eftir dauðann og útfararplan í skýinu. Sprotafyrirtæki í Sílíkondal og víðar eru í auknum mæli farin að sjá tækifæri í dauðanum og vilja sum blása nýju lífi í útfarariðnaðinn. Þau sem ganga lengst vilja gera fólki kleift að lifa að eilífu.
Spegillinn 11. janúar 2018
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir