Spegillinn

Spegillinn 12 apríl 2021


Listen Later

Spegillinn 12 apríl 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Mark Eldred
8.200 verða bólusettir með efni Pfizer í þessari viku. Búið er að fullbólusetja 1 af hverjum 10 sem bólusetja á. Von er á fyrstu skömmtunum frá lyfja-framleiðand-anum Janssen á miðvikudag.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að þegar skýrist frekar um afhendingu bóluefna hingað til lands verði hægt að búa til skýrari ramma um hvenær hægt verði að slaka á takmörkunum til lengri tíma litið.
Framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar vonast til þess að stjórnvöld komi fram með svipað úrræði og ferðagjöfin var í fyrra. Ólíklegt er þó að ferðaþjónustufyrirtæki geti boðið landsmönnum jafn góð tilboð og síðasta sumar.
Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur hafnaði í síðustu viku kröfu Eimskips um að úrskurður skattsins um endurálagningu vegna dótturfélaga í lágskattaríki yrði felldur niður. Dómari sagði af ef fallist yrði á túlkun fyrirtækisins fælist í því misnotkun á reglum til að ná fram skattahagræði.
Gert verður við varðskipið Tý til bráðabirgða, svo tvö varðskip verði til taks þangað til nýtt varðskip kemur til landsins. Áætlaður kostnaður við viðgerðina er 60 milljónir króna.
Embætti héraðssaksóknara hefur fellt niður mál Kristjáns Gunnars Valdimarssonar, lektors við Háskóla Íslands. Brotaþolar í málinu voru fjórir. Þeir geta kært niðurstöðuna til embættis ríkissaksóknara.
Vaxandi gagnrýni er á dönsk stjórnvöld fyrir ákvörðun sem tekin var í fyrra um að ógilda dvalarleyfi flóttafólks frá Sýrlandi, á þeim forsendum að í næsta nágrenni við borgina Damaskus væri öruggt að búa. Ekki er útlit fyrir að ákvörðuninni verði breytt.
Lengri umfjöllun:
Hagkerfið í heiminum virðist ætla að jafna sig fyrr á Covid-faraldrinum en útlit var fyrir samkvæmt nýrri spá Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Sjóðurinn gerir ráð fyrir að heimsframleiðslan verði þegar á þessu ári, 2021, orðin meiri en árið 2019. Samdrátturinn á Evrusvæðinu var 6,6 prósent á síðasta ári, en nú er gert ráð fyrir að hagvöxturinn verði á þessu ári verði 4,4 prósent á Evrusvæðinu og sex prósent í heiminum öllum. Spár Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir Ísland gera ráð fyrir 3,7% hagvexti á þessu ári og ögn lægri vexti á næsta ári. Landframleiðslan hér á landi í ár verður minni en hún var árið 2019, en á næsta ári 2022 , verður hún orðin ögn meiri en árið 2019, eða sem nemur 0,2%. Spegillinn fékk Gústav Steingrímsson hagfræðing hjá hjá Hagfræðideild Landsbankans til að rýna aðeins í spá Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Kristján Sigurjónsson talaði við hann.
Ráða þarf um 75 nýja lögreglu
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners