Þingmenn breska Íhaldsflokksins greiða nú atkvæði um vantraust á Theresu May, formann flokksins og forsætisráðherra. Von er á úrslitum um áttaleytið.
Michael Cohen, fyrrum lögmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta, var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi.
Bára Halldórsdóttir, sem tók upp tal sex þingmanna á Klausturbar, hefur verið boðuð sem aðili máls í Héraðsdóm Reykjavíkur til þess að gera henni ljóst að hugsanlega verði höfðað mál gegn henni.
Seðlabankastjóri segir að bankinn muni tryggja að gengi krónunnar veikist ekki, komi til þess að aflandskrónur streymi frá landinu. Hann segir bankann alvopnaðan til að takast á við slíkt.
Niðurstaða greiningar á leiðarvali um Gufudalssveit er að tillaga norsku verkfræðistofunnar Multiconsult sé besti kosturinn.
Nú virðist það vera fjarlægur draumur að hollensk hjón komist á Suðurpólinn á rafbíl úr endurunnu plasti. Ferðin hefur sóst seint vegna veðurs. Verkefnastjóri hjá Artic Trucks segir að bílinn hafi staðið sig vel og að hver kílómetri sé sigur. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Guðmund Guðjónsson, verkefnastjóra hjá Artic Trucks.
Rannsóknarsjóðir á Íslandi eru verulega undirfjármagnaðir og sá vísindamannauður sem nú þegar býr á Íslandi er vannýttur. Þetta segir formaður Vísindafélags Íslendinga. Ef ná ætti fjármögnun eins og þekkist í Danmörku þyrfti að fimm- til nífalda sjóðina. Bergljót Baldursdóttir talar við Ernu Magnúsdóttur, dósent við Læknadeild Háskóla Íslands og forseti Vísindafélags Íslendinga.
Á sama tíma og spenna vex stöðugt milli stjórnvalda í Moskvu og Kænugarði hefur orðið klofningur milli réttrúnaðarkirkna Rússlands og Úkraínu. Bartólómeus fyrsti patríarki í Konstantinópel staðfesti um mánaðamótin fyrri ákvörðun frá því í haust um sjálfstæði úkraínsku kirkjunnar frá þeirri rússnesku en þær hafa verið eitt um aldir. Anna Kristín Jónsdóttir segir frá.