Fórnarlamb manns, sem Landsréttur dæmdi á miðvikudag í fimm ára fangelsi vegna kynferðisbrota gegn þremur börnum, ætlar að sækja bætur vegna mistaka sem gerð voru við rannsókn málsins.
Ferðamálaráðherra vonar að nýr ferðaábyrgðarsjóður geti hjálpað bæði ferðaskrifstofum og þeim sem hafa átt viðskipti við þær.
Slakað verður á ferðatakmörkunum aðfaranótt mánudags. Komi upp smit telur sóttvarnalæknir að hægt verði að grípa til vægari aðgerða en áður.
Sænska ríkisútvarpið hefur ekki efni á að kaupa eintak af rannsóknarskýrslu um morðið á Olof Palme.
Ríkislögreglustjóri vill rannsaka hvort kynþáttafordómar þrífist innan lögreglunnar og rýna í samskipti hennar við innflytjendur. Umræðan um kynþáttafordóma og lögregluofbeldi vestanhafs hafi ýtt við lögreglunni hér.
Samningaviðræður Breta og Evrópusambandsins um framtíðarviðskiptasamband ganga treglega og sem fyrr eru fiskveiðimálin þrándur í götu.
Mohamedou Slahi var ranglega vistaður í Guantanamo-búðunum í meira en 14 ár. Nú er verið að gera kvikmynd um hann í Hollywood, og segist hann hafa fyrirgefið kvölurum sínum.