Spegillinn

Spegillinn 12. mars 2019


Listen Later

Umsjónarmaður Bergljót Baldursdóttir.
Evrópska flugöryggisstofnunin hefur bannað notkun Boeing 737 flugvélanna í evrópskri lofthelgi. Bannið tekur gildi klukkan sjö í kvöld. Engin sambærileg ákvörðun hefur verið tekin í Bandaríkjunum og Kanada. Allar þrjár MAX 8 flugvélar Icelandair hafa verið kyrrsettar um óákveðinn tíma.
Allir 15 dómarar í Landsrétti hafa ákveðið að kveða enga dóma upp í vikunni.
Dómur Mannnréttindadómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu eyðir ákveðinni óvissu en býr til aðra, segir formaður lögmannafélagsins. Dómurinn skilji Íslendinga eftir í tómarúmi. Formaður Dómarafélagsins telur að dómurinn sé áfall fyrir íslensk stjórnmál. Rætt verður við hana síðar í Speglinum.
Arnar Páll Hauksson, ræddi við Ingibjörgu Þorsteinsdóttur, formann Dómarafélagsins.
Félagsmenn VR samþykktu verkfallsaðgerðir með rétt rúmlega 50 prósentum atkvæða í dag. Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir niðurstöðuna ekki hafa komið á óvart. Ólöf Ragnarsdóttir talaði við hann.
Um þúsund börn á grunnskólaaldri forðast að mæta í skóla vegna tilfinningalegra erfiðleika eða af öðrum ástæðum. Skólastjórnendur segja vaxandi vanda hversu mikið fólk taki börn sín úr skóla til að fara í frí. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman og ræddi við Salvöru Nordal, umboðsmann barna og Þorsteinn Sæberg, formann Skólastjórafélags Íslands
Sigrún Davíðsdóttir í Lundúnum fjallaði um Brexit og stöðu Teresu May, forsætisráðherra. Theresa May forsætisráðherra gerði í gær lokatilraun til að endursemja við Evrópusambandið um írsku þrautavaralausnina í útgöngusamningi Breta við ESB. Útkoman er að þrátt fyrir nokkur viðbótarskjöl samkomulaginu til útskýringar þá fékk May engu breytt. Nú segir Evrópusambandið að ekki verði samið frekar og þingið virðist hikandi að samþykkja samning Mays.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

29 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners