Spegillinn

Spegillinn 12. október 2021


Listen Later

Spegillinn 12. október 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Horfur eru á að halli af rekstri Landspítala um áramót verði um milljarður króna. Stjórnendur spítalans segjast leita allra leiða til að leysa bráðavandann en fjármagn og mannafla þurfi einnig til að dæmið gangi upp.
Hættustig almannavarna hefur verið fært niður á óvissustig á Seyðisfirði. Ákveðið hefur verið að aflétta allri rýmingu í húsum í bænum.
Gömul kirkja hrundi að hluta til og skriður féllu á vegi þegar jarðskjálfti af stærðinni 6,3 reið yfir á grísku eyjunni Krít í dag.
Birgir Þórarinsson segist hafa fengið góðar móttökur á fyrsta þingflokksfundi Sjálfstæðismanna í dag.
Heimamenn í Árneshreppi á Ströndum hafa í allan dag aðstoðað áhöfnina á varðskipinu Þór við að fjarlægja yfir fimmtíu grindhvalahræ úr fjöru í hreppnum.
Bóluefni Moderna við COVID-19 verður áfram notað í örvunarbólusetningu fólks sem er 60 ára og eldra. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir tilkynnti þetta síðdegis.
Íbúar á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri lentu í 2. sæti í alþjóðlegri hjólreiðakeppni sem haldin var í september. Vistmenn voru mjög metnaðarfullir og sumir hjóluðu oft á dag.
Lengri umfjöllun:
Áhugavert verður að fylgjast með því í vetur hvernig áherslur þingmannsins Birgis Þórarinssonar sem er nýgenginn í Sjálfstæðisflokkinn úr Miðflokknum ríma við stefnu Sjálfstæðisflokksins, segir Birgir Guðmundsson stjórnmálafræðingur. Hann telur að brotthvarf Birgis mögulegan fyrirboða upplausnar Miðflokksins. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Birgi.
175 manns hafa lokið eða ljúka brátt endurhæfingu vegna langvarandi einkenna COVID 19. 50 manns bíða endurhæfingar. 12.287 manns hafa smitast af COVID-19 á Íslandi, svo að staðfest sé, samkvæmt tölfræði á covid.is Það hefur tekið marga langan tíma að ná sér að fullu, fá aftur lyktar- og bragðskyn hafi það horfið, eða fullt þrek svo að dæmi séu tekin. Blessunarlega hefur þó aðeins lítið brot þurft á endurhæfingu að halda. Endurhæfing við langvarandi einkennum COVID 19 hefur farið fram á þremur stöðum, á Kristnesspítala í Eyjafirði, Heilsustofnun í Hveragerði og á Reykjalundi.
Ragnhildur Thorlacius ræðir við Stefán Yngvason framkvæmdastjóra lækninga á Reykjalundi
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners