Fréttir:
Skipulögð brotastarfsemi færðist í aukana og fíkniefnabrotum fjölgaði á milli áranna 2016 og -17, að því er kemur fram í ársskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Það verður rúmlega átta þúsund krónum dýrara að reka meðalfjölskyldubíl á ári verði fjárlagafrumvarpið að lögum. Framkvæmdatjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir að eldsneytishækkanir í frumvarpinu bætist ofan á bensínverðið sem sé það hæsta í Evrópu.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína á Alþingi í kvöld.
Aðgerðir til að styðja við rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla voru kynntar í dag. Lagt er til að RÚV fari að hluta af auglýsingamarkaði og umsvif þess á samkeppnismarkaði verði minnkuð.
Abi-mael Guzman, leiðtogi skæruliðasamtakanna Skínandi stígs í Perú, hlaut í gær annan lífstíðardóm fyrir sprengjutilræði í höfuðborginni Lima árið 1992, þar sem 25 létu lífið. Níu aðrir forystumenn samtakanna voru einnig dæmdir í lífstíðarfangelsi.
Lögreglumaður á höfuðborgarsvæðinu var nýverið sviptur ökuréttindum og sektaður um á annað hundrað þúsund krónur fyrir ofsaakstur innanbæjar á merktum lögreglubíl.
Lengri umfjallanir:
Forsvarsmaður Vinnueftirlitsins segir dæmigert að öryggismál séu í ólagi á byggingarsvæðum á höfuðborgarsvæðinu. Spegillinn kannaði aðstæður í Úlfarsárdal með starfsmönnum stofnunarinnar fyrr í vikunni.
Kári Gylfason í Gautaborg fjallaði um störukeppni sænskra stjórnmálamanna um hver leiði næstu ríkisstjórn eftir kosningarnar á sunnudag.
Héraðsdómur hefur vísað frá dómi svokölluðu CLN-máli þar sem þrír fyrrum yfirmenn Kaupþings eru ákærðir en það eru þó ekki málalyktir. Spegillinn rifjar málið upp og nýleg erlend málaferli tengd sömu viðskiptum.
Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius.
Tæknimaður Jón Þór Helgason.