Töluvert tjón varð á húsnæði Hellisheiðarvirkjunar þegar eldur kom upp þar í dag. Varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu segir að öryggisáætlanir hafi bjargað miklu.
Íþróttafræðingur segir mikilvægt að jafna stöðu kynjanna í íþróttum. Ójafnt vægi auki líkurnar á misbeitingu og mismunun.
Forseti Bandaríkjanna hefur aldrei í sögunni látið annan eins fúkyrðaflaum út úr sér í Hvíta húsinu og Donald Trump gerði á fundi þar í gær. Þetta segir bandarískur þingmaður sem sat fundinn.
25 ár eru frá því að EES-samningurinn var samþykktur á Alþingi.
Áhrifamikill og erfiður. Alma Ómarsdóttir talar við Lilju Dögg Alfreðsdóttur og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur um kynbundið ofbeldi innan íþróttahreyfingarinnar.
Tapað stríð í Afganistan . Pálmi Jónasson segir frá.
Rauði síminn milli Norður- og Suður- Kóreu. Anna Kristín Jónsdóttir segir frá.
Umsjón Arnar Páll Hauksson.
Tæknimaður Ragnar Gunnarsson.