Forsætisráðherra Bretlands segir að tilræði sem sýnt var rússneskum feðginum í Salisbury fyrir rúmri viku sé óbilgjörn árás á breskt samfélag og miklar líkur á því að rússnesk stjónvöld beri ábyrgð á tilræðinu. Því neita Rússar. Björn Malmquist segir frá.
Stjórnvöld ætla að birta meiri upplýsingar að eigin frumkvæði segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og tekur undir það með Umboðsmanni Alþingis að stjórnvöld hafi verið of treg við upplýsingagjöf. Jóhann Bjarni Kolbeinsson talaði við hana.
Íslensk ungmenni sem tóku PISA-próf fyrir nokkrum árum tóku þau ekki alvarlega og efast um að rétt sé að íslenskir strákar geti ekki lesið sér til gagns. Bergljót Baldursdóttir talar við Evu Maríu Jónsdóttur, Fanneyju Aðalheiði Bjarkadóttur, Styrmi Steini Sverrisson og Gísla Gauta Gunnarsson.
Taprekstur er á almenningssamgöngum milli byggðakjarna úti á landi.
Gylfi Magnússon er meiddur, hversu illa kemur ljós í kvöld.
Knattspyrnusamband Íslands hefur óskað eftir skýringum frá Alþjóðaknattspyrnusambandinu á því að engir miðar verði til sölu á leik Íslands og Argentínu, þegar miðasöluglugginn á Heimsmeistaramótið í knattspyrnu verður opnaður á morgun. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá.
Vaxandi harka í norskum stjórnmálum og ríkisstjórn Ernu Solberg stendur tæpt. Gísli Kristjánsson segir frá og heyrist í Solberg.
Er skógrækt rétta leiðin fyrir Íslendinga í loftslagsmálum? Arnar Páll Hauksson segir frá og ræðir við Aðalstein Sigurgeirsson, fagmálastjóra Skógræktarinnar og Önnu Guðrúnu Þórhallsdóttur, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Fríkin eiga sér engan málsvara. Kristján Sigurjónsson ræðir við Sigurð Gylfa Magnússon, prófessor í sagnfræði sem fjallaði um hlutskipti jaðarsettra á Hugvísindaþingi.
Spegillinn 12. mars 2018
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknmaður: Magnús Þorsteinn Magnússon