Spegillinn 12.04.2019
Umsjón: Bergljót Baldursdóttir
Hvassviðrið sem gengur yfir landið hefur valdið því að erfiðlega hefur gengið að koma flugfarþegum frá borði á Keflavíkurflugvelli. Einhverjar flugferðir hafa verið felldar niður. Rætt við Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia
Landeigendur við Finnafjörð telja að alþjóðleg stórskipahöfn þar verði óásættanlegt inngrip í náttúruna. Rætt við Elías Pétursson og Reimar Sigurjónsson
Framkvæmdastjóri Einhverfusamtakanna gagnrýnir að þjónusta við einhverf börn falli undir þrjú ráðuneyti og að það vanti upp á að kerfin vinni saman. Hún veit um þrjú einhverf börn sem ekki sæki skóla. Þörf sé á þjónustu- og þekkingarmiðstöð sem veiti einstaklingum og skólum ráðgjöf. Rætt við Sigrúnu Birgisdóttur framkvæmdastjóra Einhverfusamtakanna og Hrönn Sveinsdóttur, móður ellefu ára einhverfrar stúlku
Yfir 750 eru látnir í ebólufaraldri sem geisar í Austur-Kongó. Á annað þúsund hafa veikst. Illa gengur að hefta útbreiðslu faraldursins.
Sjúkrahótelið við Landspítalann hefur fengið hæstu einkunn í vistvottun sem hús hefur fengið á Íslandi. Verkfræðingur hjá Eflu segir að vaxandi áhugi sé á umhverfisvænum byggingum hér á landi. Rætt við Helgu Jóhönnu Bjarnadóttur, verkfræðing og sviðsstjóra umhverfismála hjá verkfræðistofunni Eflu
Ljóst er að ríkið mun hafa lífskjarasamninginn sem samið var um á almenna markaðnum að leiðarljósi í viðræðum við opinbera starfsmenn. Um síðustu mánaðamót losnuðu um 150 samningar.
Mínútufjöldinn er ekki aðalatriðið þegar foreldrar ákveða skjátíma barna sinna, segir sálfræðingur hjá embætti landlæknis, meira máli skipti hvað sé verið að skoða. Rætt við Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur, sviðstjóra áhrifaþátta heilbrigðis hjá embætti landlæknis
Í lok Spegilsins heyrum við af auknum áhuga á rokksögusýningum á listasöfnum.