Spegillinn

Spegillinn 13. ágúst 2018


Listen Later

Spegillinn mánudaginn 13.ágúst 2018
Umsjónarmaður: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson
Fréttir 8:00 mín
Grindhvalahjörðin sem synti aftur inn fyrir brúna inn í Kolgrafafjörð á Snæfellsnesi er þar enn og hefur fært sig innar í fjörðinn.
Hvalasérfræðingur segir enga eina einhlíta skýringu á hegðan vöðunnar, hún gæti hafa að elta æti, villst eða jafnvel fælst.
Stytta Steinunnar Þórarinsdóttur sem stolið var í Baton Rouge í Louisiana er fundin, eftir að ábending barst frá almenningi.
Malbikun fjölfarinna malarvega, endurbætur á vegum í þjóðgarði, yfirborðsmerkingar og tilfærslur á skiltum, eru meðal brýnna verkefna í vegakerfinu á Vesturlandi að mati umferðarsérfræðings. Hann hefur undanfarið kortlagt stöðuna og þörfina á endurbótum í fjórðungnum.
Ísraelska ríkissjónvarpið segist ekki hafa bolmagn til að halda Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á næsta ári, nema fá til þess viðbótarfjármagn frá yfirvöldum. Stjórnvöld segja að fjárlög stöðvarinnar dugi vel til að halda keppnina og neita bónum um meira fjármagn.
Kristján Sigurjónsson talar við Eddu Elísabetu Magnúsdóttur um grindhvalavöðuna í Kolgrafafirði og hugsanlegar ástæður veru hennar þar. Einnig um grindhvali almennt, lifnaðarhætti og fleira.
Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Gylfa Magnússon dósent í hagfræði um efnhagsvanda Tyrkja og fall gjaldmiðils þeirra, lírunnar.
Gísli Kristjánsson í Noregi segir frá hremmingum Pers Sandbergs sjávarútvegsráðherra sem sagði af sér vegna brota hans á öryggisreglum. Ástarsamband norska sjávarútvegsráðherrans og ungrar konu af írönskum ættum urðu til þess að hann varð að taka pokann. Samsæriskenningar hafa vaðið uppi í norsku stjórnmálalífi vegna sambandsins og uppi eru kenningar um að hún sé útsendari leyniþjónustunnar í Teheran.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners