Spegillinn 13 apríl 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Ekki verður byrjað að nota bóluefnið frá lyfjaframleiðandanum Janssen fyrr en niðurstaða liggur fyrir hjá Lyfjastofnun Evrópu um hvort einhver tengsl séu milli bóluefnisins og blóðtappa
Bandaríkjaforseti, hvatti Rússa í dag til að minnka spennu við landamæri Rússlands að Úkraínu. Biden ræddi við Vladimír Pútín, Rússlandsforseta og lagði til að þeir myndu hittast á fundi á næstunni.
Hægt er að minnka svifryksmengun um allt að 40% með því að draga úr hraða bifreiða. Þetta er niðurstaða nýrrar íslenskrar rannsóknar.
Vegagerðin heggur nú leið í gegnum birkið í Teigsskógi í Gufudalssveit, þar sem nýr Vestfjarðavegur á að liggja. Það er gert til þess að leita af sér allan grun um þar leynist fornleifar.
Kvennalandslið Íslands og Ítalíu í fótbolta skildu jöfn í vináttulandsleik ytra í dag.
Lengri umfjöllun:
Joe Biden hefur nú setið 83 daga í embætti forseta Bandaríkjanna. Hvernig hefur honum farnast í embætti það sem af er? Hvernig hefur honum tekist að kljást við Covid faraldurinn, flóttamannastraum frá Mexíkó og ekki síst óróa á milli kynþátta í miðjum réttarhöldum í Minneapolis vegna drápsins á George Floyd. Kristján Sigurjónsson talar við Silju Báru Ómarsdóttur prófessor í stjórnmálafræði við HÍ.
Í fyrra fluttu ríflega 2.000 fleiri til Íslands en frá landinu; 540 fleiri íslenskir ríkisborgarar fluttu heim en að heiman og 1.540 fleiri erlendir ríkisborgarar settust hér að en fóru frá landinu. Rétt er að taka fram að Hagstofan hefur ekki tekið saman heildarfjölda flutninga til og frá landinu í fyrra, það verður gert eftir mánuð eða svo. Þessir útreikningar eru byggðir á ársfjórðungstölum Hagstofunnar og ættu að gefa nokkuð góða mynd. Ólöf Garðarsdóttir, prófessor í sagnfræði og forseti hugvísindasviðs Háskóla Íslands, hefur lengi skoðað fólksflutninga. Ólöf skoðaði að beiðni Spegilsins fólksflutninga á hinu óvenjulega ári 2020 og bar saman þrjá ársfjórðunga af fjórum við sömu ársfjórðunga önnur ár. Ólöf bendir á að Íslendingar séu gjarnari á að flytja á milli landa en margar grannþjóðir og nánast enginn munur sé á konum og körlum. Ragnhildur Thorlacius ræðir við Ólöfu.
Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði, segir að framleiðslan í gígunum á Reykjanesskaga sé að nálgast 15 rúmmetra á sekúndu. Hann telur að hraunið frá gosinu muni ekki renna langar leiðir. Nýju gígarnir sem spretta upp virðast vera viðbót. Kvikugangurinn, aðfærsluæð gossins, sé samfellt heild. Arnar Páll Hauksson talar við Þorvald.