Formaður VR segir að samningaviðræðum verði slitið ef ekkert umtalsvert komi frá stjórnvöldum til að liðka fyrir samningum. Nú stendur yfir stjórnarfundur VR þar sem farið er yfir tilboð sem SA lagði fram í morgun.
Börnum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Reykjavík verður komið fyrir í Vogaskóla, verði hugmyndir borgaryfirvalda að veruleika. Deildarstjóri í skólanum gagnrýnir þessar hugmyndir harðlega því þær mismuni börnum vegna uppruna.
Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar hefur ákveðið að vísa bílaleigunni ProCar úr samtökunum.
Hagnaður Arion banka á síðasta ári var undir væntingum. Bankastjórinn segir að erfiðar aðstæður á hluta- og skuldabréfamörkuðum og ekki síst hræringar í flugrekstri hafi sett mark sitt á starfsemina.
Bæjarstjórn Kópavogs hefur ákveðið að lækka laun bæjarfulltrúa um 15%.
Ísland stendur öðrum Norðurlöndum að baki í fæðingarorlofslöggjöf og réttindum foreldra í fæðingarorlofi. Þetta segir dósent í félagsfræði.
Tryggingarstofnun hefur beðist velvirðingar á því að hafa í tölvupósti krafið Jóhönnu Þorsteinsdóttur um endurgreiðslu vegna þess að hún hafi fengið ofgreitt frá stofnunni. Það var vegna máls hennar, sem nú stendur til að endurgreiða öryrkjum rúmlega 2 milljarða króna fjögur ár aftur í tímann. Allt bendir til þess að Jóhanna eigi inni hjá stofnunni en sé alls ekki í skuld við hana. Arnar Páll Hauksson talar við Jóhönnu Þorsteinsdóttur.
Úígúrar er þjóð eða þjóðarbrot innan Kína, líkt og Tíbetar. Langflestir búa þeir í Xinjiang-héraði, gætu verið um 15 milljónir, en tölur eru á reki. Þar fyrir utan búa samtals á um fjórða hundrað þúsund Úígúra í nágrannaríkjum eins og Kasakstan, Túrkistan og Úsbekistan og víðs vegar um heim í Tyrklandi, Bandaríkjunum og Ástralíu, til að mynda. Kristján Sigurjónsson segir frá stöðu þessa þjóðarbrots í Kína.
Sir Lynton Crosby hefur boðist til þess að grafa undan möguleikum Katar á að halda Heimsmeistarakeppnina í fótbolta árið 2022 gegn 5,5 milljóna punda greiðslu eða sem nemur nærri 900 milljónum króna. Crosby er þekktur almannatengill og einn helsti herfræðingur Íhaldsmanna í Bretlandi. Hann lagði fram ítarlega áætlun um hvernig fyrirtæki hans myndi dreifa neikvæðum fréttum um Katar og þrýsta á Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, að halda keppnina annars staðar. Pálmi Jónasson segir frá.
Umsjón Arnar Páll Hauksson.
Tæknimaður Ragnar Gunnarsson.