Spegillinn

Spegillinn 13. janúar 2022


Listen Later

Spegillinn 13. janúar 2022
Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson
Tæknimaður: Mark Eldred.
Ekkert skóla- og frístundastarf verður í hluta Seljahverfis í Reykjavík á morgun og á mánudag vegna mikillar útbreiðslu COVID-smita. Skólastjóri Seljaskóla segir ómögulegt að ná utan um smitin. Þremur skólum á Austurlandi verður einnig lokað á morgun.
Um 200 heilbrigðisstarfsmenn vantar til starfa á Landspítalanum til að mæta auknu álagi vegna faraldursins. Börnum á covid göngudeild Landspítala fjölgar hratt. Þá er erfitt ástand á Sjúkrahúsinu á Akureyri og fjöldi starfsmanna í sóttkví eða einangrun.
Kennarar kolfelldu kjarasamning við sveitarfélögin í dag. Stjórnarformaður sambands íslenskra sveitarfélaga segir niðurstöðuna dapurlega.
Bandaríkjastjórn ætlar að kaupa fimm hundruð milljónir COVID-prófa til viðbótar við þann hálfa milljarð sem þegar hefur verið samið um. Prófin verða afhent endurgjaldslaust.
Lengri umfjöllun:
Það er þungur róður á Landspítala. Þetta kann að hljóma kunnuglega. Spítalinn hefur verið á neyðarstigi frá því rétt fyrir áramót og í vikunni lýstu almannavarnir yfir neyðarstigi sínu vegna farsóttarinnar. Sjúklingum sem liggja inni með COVID-19 fjölgar dag frá degi, í dag eru þeir 43, þar af sex á gjörgæslu. Lengi hefur verið vandamál að manna spítalann svo að allt gangi smurt fyrir sig. Ótti stjórnvalda er sá að innlögnum fjölgi á næstunni vegna þess geigvænlega fjölda smita sem hefur greinst frá því að yfirstandandi bylgja tók að rísa um miðjan desember. En nú, eins og svo oft áður, stendur spítalinn frammi fyrir risastóru verkefni. Að halda heilbrigðiskerfinu gangandi. Það vofir yfir að gripið verði til hertra samfélagslegra takmarkana. Landlæknir sagði til að mynda í hádegisfréttum að staðan hefði sjaldan eða aldrei verið þyngri frá því faraldurinn hófst. Bjarni Rúnarsson ræddi við Guðlaugu Rakel Guðjónsdóttur, starfandi forstjóra Landspítala.
Grunnskólakennarar kolfelldu í dag kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn lauk á hádegi í dag og var niðurstaðan sú að Nei sögðu tæp 74% og tæpur fjórðungur sagði já. Lífskjarasamningurinn svokallaði, við heildarsamtök launafólks, var undirritaður í apríl 2019 en grunnskólakennarar sömdu í byrjun september 2020. Sá samningur var til sextán mánaða og náði til 5,400 kennara. Ekki náðist samkomulag um útfærslu á styttingu vinnutímans og álagsgreiðslur m.a. vegna kórónuveirufaraldursins. Kjaradeilunni var því vísað til sáttasemjara 11. desember og samningur undirritaður 30. desember. Rætt var við Aldísi Hafsteinsd
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners