Spegillinn

Spegillinn 13. júní 2022


Listen Later

Spegillinn 13. júní 2022
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Hætt er við að verðbólga aukist enn frekar ef þeir sem ákveða verð, kaup og kjör gera ráð fyrir mikilli verðbólgu í ákvörðunum sínum, segir varaseðlabankastjóri.
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna segir Bretlandsstjórn setja slæmt fordæmi með því að senda hælisleitendur til Rúanda.
Innlögnum vegna Covid hefur fjölgað á Landsspítalanum að undanförnu, Allt að hundrað og fimmtíu covidsýkingar hafa greinst daglega
Endurhæfing Guðmundar Felix Grétarssonar, sem fékk græddar á sig hendur og axlir í fyrra, gengur framar vonum. Aðgerðin var efni fyrirlestrar á norrænu lýtalæknaþingi.
Sóttvarnalæknir segir að jafnvel megi flokka apabólu sem kynsjúkdóm. Þrjú tilfelli hafa verið staðfest hér á landi.
Íbúum nokkurra bæja í norðurhluta Úkraínu var gert að yfirgefa heimili sín í dag eftir að Rússar skutu eldflaugum á bæinn Pryluky, um 150 kílómetra austur af Kænugarði.
Lengri umfjöllun:
Banaslys varð í Reynisfjöru á föstudaginn; erlendur ferðamaður á áttræðisaldri lést og kona hans var hætt komin. Daginn eftir birtust myndir af ferðamönnum sem misstu fótanna í öldurótinu en tókst blessunarlega að komast upp í fjöruna. Fimm banaslys hafa orðið í Reynisfjöru undanfarin sjö ár. Fyrir þremur árum átti að gera áhættumat fyrir fjöruna, það er ekki komið enn og sveitarstjóra Mýrdalshrepps og fleiri farið að lengja eftir því. Friðrik Rafnsson formaður Leiðsagnar félags leiðsögumanna segir skiljanlegt að fólk sé slegið þegar fólk ferst og eðlilegt viðbragð að skella í lás - en það sé ekki einfalt. Anna Kristín Jónsdóttir talar við Friðrik.
Vonir standa til að lyf sem hægir á eða stöðvar hrörnun í augnbotni komi á markað innan skamms. Á stórri alþjóðlegri augnlækningaráðstefnu sem haldin var í Hörpu í Reykjavík um helgina var greint frá þessu. Ráðstefnan er fyrir lærða og leika. Þarna komu saman augnlæknar víða að úr heiminum, sjúklingar, aðstandendur og félagasamtök sjónskertra og blindra. Sigþór Unnsteinn Hallfreðsson er formaður Blindrafélagsins, en félagið vann að undirbúningi ráðstefnunnar sem um þúsund manns sóttu. Kristján Sigurjónsson ræðir Sigþór.
Gengur það að svartur maður verði tengdasonur norsku konungshjónanna? Eða kemur nokkrum það við öðrum en viðkomandi manni og verðandi eiginkonu hans? En nú er Marta Lovísa, konungsdóttir í Noregi, trúlofuð andalækninum Durek Verret og yfir þau hellast ókvæðisorð, morðhótanir og fyrirlitning ? Gísli Kristjánsson í Noregi segir frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

473 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

25 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners