Spegillinn

Spegillinn 13. maí 2019


Listen Later

Spegillinn mánudaginn 13.maí 2019
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Davíð Berndsen
Atkvæðagreiðsla um þungunarrofsfrumvarp heilbrigðisráðherra stendur nú yfir á Alþingi og er hart tekist á. Tillaga formanns Miðflokksins um að fresta afgreiðslu málsins var felld. Forsætisráðherra segir frumvarpið gríðarlegt framfaraskref fyrir frelsi einstaklingsins.
Þingmaður Viðreisnar óttast að Krabbameinsfélagið þurfi að óbreyttu að segja upp starfsfólki frá og með næstu mánaðamótum vegna stefnuleysis í krabbameinsleit.
Settar hafa verið upp eftirlitsmyndavélar á sex stöðum í Kópavogi og fleiri myndavélar bætast við á næstunni. Bæjarstjóri segir að þær hafi nýst við að upplýsa innbrot og hafi fælingarmátt fyrir glæpamenn.
Kennsla í Seljaskóla fer að hluta fram í Seljakirkju og félagsmiðstöðinni Hólmaseli á næstu dögum, eftir eldsvoða í skólanum um helgina.
Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks gagnrýnir þá ákvörðun ríkissaksóknaraembættisins í Svíþjóð að hefja í þriðja skipti rannsókn á meintum kynferðisbrotum Julians Assange, stofnanda Wikileaks. Hann býst ekki við að Assange verði ákærður.
Fyrrum ritari enska fótboltaliðsins Sheffield Wednesday var í dag dæmdur til þess að greiða 6500 punda sekt vegna vanrækslu í tengslum við slysið á Hillsborough-vellinum í Sheffield fyrir þrjátíu árum. Þetta er fyrsta sakfellingin í málaferlum vegna slyssins þar sem 96 létu lífið.
Lengri umfjallanir:
Óhætt er að segja að nemendum, foreldrum og starfsfólki Seljaskóla í Reykjavík hafi brugðið við fréttirnar af eldsvoða í skólanum aðfaranótt sunnudags. Ekki er enn vitað um eldsupptök, en ljóst er að tjón er mikið. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir að byggingarlag skólans og steypt plata undir þaki hússins hafi komið í veg fyrir enn meira tjón. Hann segist skilja vel áhyggjur fólks af öryggi nemenda og starfsfólks skólans. Kristján Sigurjónsson ræðir við Jón Viðar.
Guðrún Theódórsdóttir, doktor í annarsmálsfræðum við Háskóla Íslands, segir að ekki sé til nægilega mikið námsefni, og ekki nógu fjölbreytt, í íslenskennslu fyrir fullorðna innflytjendur. Mikilvægt sé að vanda til verka og sjá til þess þeir sem stjórni kennslunni hafi nægilega þekkingu á málaflokknum. Í spurningakönnun, sem yfir 2200 innflytjendur á Íslandi tóku þátt í, kemur fram að um 60 prósent þeirra eru óánægð með þau íslenskunámskeið sem þeim stendur til boða. Könnunin er liður í rannsóknarverkefninu - Samfélög án aðgreiningar? Aðlögun innflytjenda á Íslandi sem hleypt var af stokkunum í ársbyrjun 2018. Auk Háskólans á Ak
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

29 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners