Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, hefur ákveðið að víkja tímabundið sem dómsmálaráðherra. Hún segist gera það til að skapa vinnufrið um Landsréttarmálið og ætlar að leggja til að dómi Mannréttindadómstóls Evrópu verði skotið til yfirdóms.
Ríkisráðsfundur verður haldinn á morgun til að ganga frá ráðherraskiptum.
Dómurinn í gær gæti haft áhrif á 82 sakamál sem ríkissaksóknari hefur rekið fyrir Landsrétti.
Stjórnir Íslandsbanka og Landsbankans hafa ákveðið að lækka laun bankastjóra sinna. Bankasýslan upplýsti fjármálaráðherra um þetta í dag.
Kanadamenn hafa bannað að þotum af gerðinni Boeing 737 MAX 8 og 9 verði flogið í kanadískri lofthelgi. Flugritar úr farþegaþotunni sem fórst í Eþíópíu í byrjun vikunnar verða sendir til rannsóknar í Evrópu.
Rými hefur skapast í samfélaginu til að ræða um kynferðisofbeldi valdamikilla einstaklinga. Mál Michael Jacksons og Jóns Baldvins Hannibalssonar eru dæmi um það. Þetta segir kynjafræðingur. Bergljót Baldursdóttir talar við Gyðu Margréti Pétursdóttur.
Kjaraviðræður eru á viðkvæmu stigi. Nú er reynt til þrautar að ná samningum. Rætt er um að lengja samningstímann og hækka laun þeirra lægst launuðu meira en tilboð SA kvað á um.
Líf Þórdísar Elísabetar Arnarsdóttur, tíu ára, hreyfihamlaðrar stelpu í Kópavogi, breyttist í byrjun þessa mánaðar þegar hún fékk Notendastýrða persónulega aðstoð. Aðstoðin sem hún fær heyrir ekki lengur undir mörg svið hjá bænum. Þar sem Þórdís er barn þarf hún aðstoð við að verkstýra aðstoðarkonum sínum. Þá aðstoð fær hún frá móður sinni, Guðnýju Steinunni Jónsdóttur, Guðný er þá í tvöföldu hlutverki gagnvart dóttur sinni, móðir hennar, en líka sú sem á að tryggja að aðstoðin sem Þórdís fær sé á hennar forsendum. Arnhildur Hálfdánardóttir talar við Þórdísi Elísabetu Arnarsdóttur og Guðnýju Steinunni Jónsdóttur.