Fjölmörg ríki styðja forsætisráðherra Breta Theresu May sem hefur verið ómyrk í máli um hlutdeild Rússa í tilræði sem rússneskum feðgum var sýnt í Salisbury fyrir viku. May hefur gefið Rússum frest til kvöld til að svara fyrir en þeir hafa neitað.
Vændi er orðið miklu algengar í Reykjavík en það var fyrir nokkrum árum segir Snorri Birgisson, sem fer fyrir mansalsteymi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Það er jafnauðvelt að panta vændiskonu og panta pizzu. Bergljót Baldursdóttir talaði við hann.
Rex Tillerson utanríkisráðherra var vikið úr embætti í dag, því fylgdi uppstokkun. Forstjóri CIA verður utanríkisráðherra og Gina Haspel tekur við því embætti. Jóhann Hlíðar Harðarson segir frá Haspel sem er sögð hafa stjórnað pyntingum í leynifangelsum Bandaríkjamanna.
Fjölskylda Hauks Hilmarssonar hitti utanríkisráðherra í dag og vonar að svör berist um afdirf Hauks frá tyrkneskum yfirvöldum.
Grunnskólakennarar hafa skrifað undir kjarasamning til eins árs og nú fer hann í atkvæðagreiðslu hjá félagsmönnum. Ásrún Brynja Ingvarsdóttir talar við Ólaf Loftsson, formann grunnskólakennara.
Ragnar Ingólfsson formaður VR segist sáttur við stjórnarkjör í félaginu, þó að einungis tveir af sjö sem kjörnir voru í dag séu yfirlýstir stuðningsmenn hans. Arnar Páll Hauksson talar við Ragnar.
Framtakssjóður hefur að mestu lokið störfum en verður ekki leystur upp fyrr en 2020, rætt við Þorkel Sigurlaugsson, stjórnarformann og Ásgeir Jónsson, hagfræðing sem hefur tekið út störf sjóðsins.
Bresk stjórnvöld er harðorð um þátt Rússa í tilræði gegn rússneskum feðginum í Salisbury nýlega en hafa verið sökuð um linkind gagnvart rússneskum oligörkum í Lundúnum. Sigrún Davíðsdóttir segir frá, heyrist í Theresu May, Donald Trump og Jeremy Corbyn.
Ásmundur Daði Einarsson, félagsmálaráðherra boðar endurreisn fæðingarorlofskerfisins svo auðveldara verði að brúa bil milli þess og dagvistunar. Arnhildur Hálfdánardóttir skoðar afstöðu aðila vinnumarkaðarins og ræðir við Ásmund, Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins og Sonju Ýr Þorbergsdóttur, lögfræðing BSRB.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon