Spegillinn 13.11.2018
Umsjón: Pálmi Jónasson
Samningamenn Evrópusambandsins og Bretlands hafa náð samkomulagi um drög að útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu.
Aðhaldsaðgerðir verða kynntar fyrir aðra umræðu fjárlaga á fimmtudag vegna kólnunar í hagkerfinu.
Óskað hefur verið eftir neyðarfundi í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna vegna ástandsins á Gaza. Sameinuðu þjóðirnar vara við því að stríð sé að brjótast út.
Biðtími og biðlistar eftir hjúkrunarrýmum hér á landi hafa lengst umtalsvert frá því í fyrra. Landlæknir hefur þungar áhyggjur af stöðu mála.
Orkuframleiðsla með vindorku, litlum vatnsorkuverum og varmadælum eru þeir þrír orkukostir sem standa framar öðrum við orkuöflun hér á landi á komandi árum, samkvæmt nýrri skýrslu atvinnuvegaráðuneytisins.
Dæla þarf að minnsta kosti 120 tonnum af sandi í flutningaskipið Fjordvik til að rétta það af áður en það verður tekið inn til viðgerðar.
Lengri umfjallanir:
Það hefur legið fyrir að samningar Breta við ESB væru á lokasnúningi. Enginn samningur var þó lagður fyrir ríkisstjórnarfund í morgun en síðdegis var tilkynnt að stjórnin fengi fyrirliggjadi samningsdrög sem yrðu rædd á morgun. Simon Coveney utanríkisráðherra Íra sagði þó samningum enn ekki lokið. En hvort Theresa May forsætisráðherra mun koma samningi í gegnum þingið er önnur og erfiðari saga. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Velgengni Manchester City byggist á kerfisbundnu svindli þar sem peningum er dælt ólöglega inn í klúbbinn. Þeir hafa svindlað sér á toppinn. Þetta sýnir ótrúlegur fjöldi gagna og tölvupósta sem lekið hefur verið og birt í Der Spiegel að undanförnu. Þess er krafist að liðinu verði refsað. Geri Evrópska knattspyrnusambandið það ekki, verði leitað annarra leiða. Spænsk lið hóta málsókn og forráðamenn ensku liðanna halda fund á fimmtudag til að ræða aðgerðir. Pálmi Jónasson segir frá.
Öryrkjar sem hafa búið í löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins fá mun hærra hlutfall örorkulífeyris á Íslandi en þeir sem hafa búið í öðrum EES löndum. Þeir sem fá skertar bætur á unga aldri vegna búsetu í útlöndum sitja uppi með skerðinguna ævilangt. Arnar Páll Hauksson tók saman.