Spegillinn 13.12.2018
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Farið var eftir kjarasamningsbundnum ákvæðum um starfsaldur þegar fjörutíu fastráðnum flugfreyjum og flugþjónum og tugum lausráðinna var sagt upp í aðgerðum WOW flugfélagsins í dag. Haukur Hólm ræddi við Orra Þrastarson, varaformann Flugfreyjufélags Íslands
Óvissa ríkir um áhrif tíðinda dagsins á ferðaþjónustuna. Elvar Ingi Möller sérfræðingur hjá greiningardeild Arion Banka segir að það geti orðið samdráttur vegna uppsagnanna. Það velti að miklu leyti á viðbrögðum Icelandair sem hefur sagst geta mætt hugsanlegum framboðsskorti. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Elvar Inga Möller
Báru Halldórsdóttur bar mögulega skylda til þess að upplýsa um samtal þingmanna á barnum Klaustri, sem hún tók upp og sendi fjölmiðlum. Þetta segir lögmaður hennar. Jóhann Bjarni Kolbeinsson ræddi við Ragnar Aðalsteinsson
Kjósendur Framsóknarflokksins eru líklegri en kjósendur annarra flokka til að taka slátur. Kjósendur Viðreisnar eru síst líklegir til sláturgerðar. Þetta kemur fram í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallups. Ásrún Brynja Ingvarsdóttir tók saman
Lengra efni:
Stjórnmálamenn hafa brugðist ungu fólki og eru að kasta framtíð okkar á glæ, segir ritari Ungra umhverfissinna á Íslandi. Ungt fólk á loftslagsráðstefnunni í Póllandi krefst þess að fá rödd við samningaborðið. Umsjónarmaður ræddi við Sigurð Thorlacius, ritara Ungra umhverfissinna
Ellefu þingmenn vilja að fjórar af sex lagagreinum um þjóðsönginn verði felldar niður. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins segir að þær standist ekki ákvæði stjórnarskrárinnar um tjáningarfrelsi. Arnar Páll Hauksson talaði við Helga Hrafn Gunnarsson
Theresa May forsætisráðherra Breta sigraðist á uppreisnarmönnum í eigin flokki en höfuðvandi hennar er eftir sem áður að koma í gegnum þingið úrgöngusamningi við Evrópusambandið. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá