Lífeyrissjóðskerfið er ósjálfbært en við höfum tíma til að rétta það af. Þetta er mat Gylfa Magnússonar, prófessors við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Hann hélt erindi í Seðlabankanum í dag og lagði þar til breytingar á lífeyriskerfinu, breytingar sem kæmu í veg fyrir óhindraðan vöxt kerfisins og að lukkan ein stýri því hversu trygg framfærsla fólks er í ellinni. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Gylfa Magnússon.
Viðleitni til að selja lífeyrissjóðum allt að fimm prósenta hlut í Arion banka fyrir margboðað útboð Arion banka, rann út í sandinn. Og nú verður uppgjör bankans birt á morgun, þá spurning hvernig farið verður með tapið af United Silicon. Hræringar í kringum Arion eru vísbendingar um átök um undirtökin í íslensku viðskiptalífi. Sigrún Davíðsdóttir.
Jacob Zuma, forseti Suður-Afríku, hefur hundsað samþykkt Afríska þjóðarráðsins, sem er flokkur hans. Miðstjórn Afríska þjóðarráðssins, ANC, samþykkti á löngum fundi í gærkvöld og nótt að biðja Jaco Zuma forseta að segja af sér forsetaembættinu. Afríska þjóðarráðið er núverandi stjórnarflokkur og hefur ráðið lögum og lofum í Suður-Afríku frá því minnihlutastjórn hvítra vék fyrir lýðræðislega kjörinni stjórn á tíunda áratug síðustu aldar. Nelson Mandela varð þá forseti landsins. Allir forsetar Suður-Afríku síðan hafa verið úr Afríska þjóðarráðinu. Bogi Ágústsson.
Spegillinn 13. febrúar 2018
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir/Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon