Umsjón: Pálmi Jónasson
Viðræðum verður líklega slitið og byrjað að huga að aðgerðum ef enginn árangur verður á fundi hjá sáttasemjara á miðvikudaginn með atvinnurekendum. Þetta segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Lýstar kröfu í þrotabú Primera Air á Ísland nema tíu milljörðum. Engin ákvörðun hefur verið tekin um riftunarmál en það er til skoðunar. Arion banki er einn þeirra sem hafa lýst kröfu í búið.
Borgarstjóri Gdansk í Póllandi var stunginn með hnífi á góðgerðarsamkomu í borginni í gærkvöld. Hann lést af sárum sínum á sjúkrahúsi í dag.
Orrustuflugmaður viðurkenndi að hafa drepið Dag Hammarskjöld, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna árið 1961, ef marka má nýja heimildarmynd.
Lengri umfjöllun:
Formaður VR segir að ef ekki verði einhver árangur í viðræðum við Samtök atvinnulífsins hjá sáttasemjara á miðvikudaginn sé ekki ólíklegt að viðræðunum verði slitið og byrjað verði að huga að leiðum til að ná kröfunum fram. Hugsanlega verðið lagt fram ákveðið aðgerðarplan. Arnar Páll ræðir við Ragnar Þór Ingólfssson, formann VR.
Orrustuflugmaður viðurkenndi að hafa drepið Dag Hammarskjöld, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, ef marka má nýja heimildarmynd sem verður frumsýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni eftir hálfan mánuð. Hammarskjöld lést í dularfullu flugslysi í Afríku 1961 en hið hörmulega flugslys eða tilræði hefur aldrei verið upplýst að fullu. Pálmi Jónasson segir frá.
Það orð sem fer af aldamótakynslóðinni er neikvætt. Hún er talin sjálfhverf, löt til vinnu, viðkvæm og ýmist of upptekin við að spila tölvuleiki eða taka sjálfsmyndir á símann. Almannatenglar breska hersins virðast allavega draga þessa ályktun og vilja með nýrri herferð fullvissa ungt fólk á aldrinum 16 - 25 ára um að herinn líti á meinta veikleika þess, svo sem bullandi sjálfsöryggi og úthald við tölvuskjáinn sem styrkleika. Þetta endurspeglar ný og umdeild auglýsingaherferð sem miðar að því að fá fleiri í her sem talin er of fáliðaður. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá.