Spegillinn 14.janúar 2022
Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson
Tæknimaður: Mark Eldred.
Víðtækar lokanir voru meðal þeirra þriggja leiða sem sóttvarnalæknir tiltók í minnisblaði til heilbrigðisráðherra. Stjórnvöld völdu millileið með herðingum frá því sem nú er en slepptu nokkrum atriðum sem Þórólfur tiltók. Veitingamenn og viðburðarhaldarar furða sig á hertum aðgerðum.
Lokunarstyrkir og viðspyrnustyrkir standa aftur til boða í kjölfar hertra aðgerða. Þá verður einnig komið til móts við veitingamenn og greiðslu opinberra gjalda slegið á frest. Starfandi fjármálaráðherra segir það mikil vonbrigði að grípa hafi þurft til hertra aðgerða.
Vegabréfsáritun serbneska tenniskappans Novak Djokovic til Ástralíu hefur verið ógilt í annað sinn og óvissa ríkir um þátttöku hans á Opna ástralska meistamótinu í tennis.
Verðbólga er aftur orðin vandamál í efnahagslífi í heiminum, hún var sjö prósent í Bandaríkjunum í desember, meiri en verið hefur í 40 ár. Hagfræðingar búast margir við vaxtahækkunum. Rætt verður við Gylfa Magnússon prófessor í Speglinum.
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að taka á móti allt að sjötíu afgöngskum flóttamönnum til viðbótar við þá sem fengu hér hæli fyrir jól, í ljósi þeirrar ólgu og upplausnar sem ríkir í Afganistan.
Lengri umfjöllun:
Ríkisstjórnin ákvað í morgun og herða samkomutakmarkanir úr 20 manns í 10.Aðgerðirnar taka gildi á miðnætti. Skólastarf verður óbreytt og skemmtistöðum, krám og spilasölum verður gert að loka en veitingastaðir mega hafa opið til klukkan 21. Líkamsræktarstöðvar og sundstaðir mega áfram taka á móti helmingi leyfilegs fjölda gesta. Viðburðahald með hraðprófum fellur úr gildi en sviðslistaviðburðir, svo sem leikhús og kvikmyndahús mega taka á móti 50 manns í rými með meter á milli ótengdra með grímu fyrir vitum sér. Það gildir einnig um útfarir og kórastarf og menningarviðburði. Íþróttaæfingar mega áfram fara fram, en án áhorfenda. Hertar samkomutakmarkanir taka gildi á miðnætti. Efnahagslegar aðgerðir eru í smíðum til að bregðast við vegna þessa. Spegillinn ræddi við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra, sem gegnir skyldum fjármálaráðherra þessi dægrin, en hann er í tímabundnu fríi frá störfum. Þórdís hefur verið talsmaður þess að hér séu ekki harðar samfélagslegar aðgerðir við lýði. Bjarni Rúnarsson ræddi við hana.
Verðbólga hefur farið vaxandi á síðustu misserum um allan heim. Bogi Ágústsson leitaði skýringa á fyrirbrigðinu hjá Gylfa Magnússyni prófessor við Háskóla Íslands.