Spegillinn þriðjudaginn 14. maí 2019
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Marteinn Marteinsson
Biskup stóð ekki rétt að því að leysa prest frá störfum vegna siðferðisbrota. Hann fær þó ekki að snúa aftur til kirkjunnar sem hann þjónaði.
Öll utanríkismálnefnd Alþingis vill samþykkja þriðja orkupakkann, nema fulltrúi Miðflokksins.
Fimm fjölskyldur frá Sýrlandi, alls 23 flóttamenn, komu til Íslands í dag. Fjölskyldurnar eignast ný heimili á Hvammstanga.
Yfirmaður hjá Human Rights Watch samtökunum gerir sér vonir um að Íslendingar fylgi eftir yfirlýsingum sínum í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna með enn sterkara útspili. Hann segir að mannréttindi í heiminum eigi undir högg að sækja.
Hatara-hópurinn stígur á svið í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Tel Aviv upp úr klukkan 8 í kvöld. Hann er númer 13 í röðinni, en útsending hefst klukkan 7.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur umsjón með fjölda eftirlitsmyndavéla víðsvegar í borginni sem hafa nýst við að upplýsa mál. Rannsókn á máli Birnu Brjánsdóttur varð til þess að eftirlitsmyndavélum hefur fjölgað.
Tveir hópar félaga innan BHM koma fram aðskildir í kjaraviðræðum við ríkið. Annars vegar hafa átta félög ákveðið að vera í samfloti. Í þessum hópi eru t.d. náttúrufræðingar, viðskiptafræðingar og sálfræðingar. Í hinum hópnum er 12 félög. Ekki er um klofning að ræða eða ágreining heldur mismunandi aðferðir við að ljúka samningum. Styrkur svifryks á nokkrum stöðum í Reykjavík hefur verið mikill í dag, langt yfir heilsuverndarmörkum.
Lengri umfjallanir:
John Fisher, yfirmaður Genfarskrifstofu Human Rights Watch samtakanna, vonar að Íslendingar geti fylgt eftir yfirlýsingu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna, um Sádi-Arabíu og ástandið á Filippseyjum, með ályktunum sem sé enn sterkara útspil. Mannréttindi eigi undir högg að sækja í heiminum og útganga Bandaríkjanna úr Mannréttindaráðinu hafi alvarlegar afleiðingar. Ísland tók sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í byrjun árs eftir að Bandaríkjamenn sögðu sig úr því í júní í fyrra og hafa síðan þá látið til sín taka. Evrópuríki í mannréttindaráðinu, með Ísland í fararbroddi, kröfðust þess að yfirvöld í Sádi-Arabíu slepptu báráttufólki fyrir mannréttindum úr haldi og sýndu samstarfsvilja við alþjóðlega rannsókn á morði á blaðamanninum Jamal Khashoggi. Þetta var í mars og það var í fyrsta sinn sem Sádi-Arabía var beitt slíkum þrýstingi í ráðinu. Íslendingar hafa líka gagnrýnt stjórnvöld á Filippseyjum vegna ástands mannréttindamála þar og voru stjórnvöld á Filippseyjum ósátt við það.