Spegillinn

Spegillinn 14. mars 2022


Listen Later

Spegillinn 14. Mars 2022
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Byrjað er að flytja íbúa Mariupol í Úkraínu út úr borginni eftir um tveggja vikna herkví. Friðarviðræðum Rússa og Úkraínumanna lauk seinnipartinn án niðurstöðu en annar fundur hefur verið boðaður á morgun.
Embætti landlæknis er með andlát ungs barns á Norðurlandi sem smitað var af Covid til rannsóknar.
Vonskuveður hefur gengið yfir landið í dag - Sunnan og suðaustan rok með úrhellis rigningu á suður og vesturlandi. Fjallvegir eru víða lokaðir og björgunarsveitir verið kallaðar út vegna fok og vatnstjóns.
Framkvæmdastjóri lækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri segir að eldra fólk smitistt í meira mæli en áður af Covid.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra kynnti í morgun ríkisstjórn og utanríkismálanefnd tillögu sína um að opna sendiráð Íslands í Varsjá, höfuðborg Póllands.
Lengri umfjöllun:
Hátt í þrjár milljónir Úkrínumanna hafa nú flúið land eftir að rússneski herinn réðist inn í Úkraínu 24. febrúar. Fjöldinn á eftir að aukast enn meir á næstu dögum og vikum ef ekki verður breyting á hernaði Rússa gegn landi og þjóð. Langflestar Evrópuþjóðir hafa heitið því að taka höndum saman og koma flóttafólkinu til hjálpar til lengri og skemmri tíma. Búist er við að nokkur þúsund manns komi til Íslands og vinna komin á fullt við að taka á móti flóttafólkinu. Úkraínumenn bætast nú við þá flóttamenn og hælisleitendur sem komið hafa hingað frá öðrum löndum. Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar segir formsatriði fyrir það fólk sem flúið hefur stríðið í Úkraínu að fá atvinnuleyfi hér á landi. Næga vinnu sé að hafa og atvinnuleysi minnki jafnt og þétt á næstu mánuðum. Óljóst sé hins vegar hversu stór hlúti af því fólki sem flýr stríðið í Úkraínu sæki um atvinnu hér á landi. Flestir ala eflaust þá von í brjósti að geta snúið til baka eins fljótt og auðið er. Vissar reglur gilda um atvinnuleyfi fyrir flóttafólk og hælisleitendur. Kristján Sigurjónsson talar við Unni.
Margir loka eyrum þegar lífeyrismál ber á góma. En þau skipta okkur máli, og það er undir hverju og einu okkar komið að huga að þeim. Því fyrr, því betra. Margir sigla í gegnum starfsferil sinn á lygnum sjó án þess að huga sérstaklega að lífeyrisréttindum sínum og þeim möguleikum sem standa til boða þegar hyllir undir starfslok. Bjarni Rúnarsson ræddi þessi mál við Björn Berg Gunnarsson deildarstjóra greiningar og fræðslu hjá Íslandsbanka.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

21 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

19 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

32 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

42 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

12 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners