Spegillinn

Spegillinn 14. mars. Dómsmálaráðherra. Brexit. NPA.


Listen Later

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tók tímabundið við embætti dómsmálaráðherra á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag. Ráðstöfunin er til nokkurra vikna, að sögn Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins.
Breskir þingmenn hafa undanfarinn klukkutíma greitt atkvæði um tillögur sem snúa að því að fresta Brexit - útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Tillögu um að halda nýja þjóðaratkvæðagreiðslu var hafnað með miklum meirihluta.
Það er um 66 prósentum dýrara að reka heimili á Íslandi en í Evrópusambandinu. Ísland kemur illa út í samanburði við dýrustu löndin í sambandinu þegar litið er á verð á matvælum.
Loðnubresturinn er sveitarfélögum sem byggja tilveru sína á vinnslu uppsjávarafla mikið áfall. Mörg þeirra skoða nú hvort ástæða sé til að endurskoða fjárhagsáætlun ársins.
Samtök ferðaþjónustunnar lýsa fullum stuðningi við Samtök atvinnulífsins í kjaraviðræðum og hvetja verkalýðsfélög til að fresta verkföllum. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir að framtíð greinarinnar hafi aldrei verið eins óljós.
Nýjar rannsóknir og uppgötvanir benda til þess að handan Plútó sé pláneta sem sé um það bil 10 sinnum stærri en jörðin. Vísindamenn telja að tilvist hennar verði sönnuð á næstu 10 árum og hún verði 9. reikistjarna sólkerfisins. Jóhann Hlíðar Harðarson.
Sumt fólk með þroskahömlun þrífst ekki innan hefðbundinna úrræða, því líður einfaldlega illa. Það átti við um Gísla Björnsson. Líf hans gjörbreyttist til hins betra þegar hann fékk NPA en móðir hans segir nýja fyrirkomulagið þó ekki gallalaust. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Gísla, Gunnhildi móður hans, Bryndísi Snæbjörnsdóttur, formann Þroskahjálpar og Björgvin Björgvinsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

29 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners