Nemendum í 9. bekk gefst kostur á að taka aftur samræmd próf í ensku og íslensku. Nemendur ráða því sjálfir hvort þeir taka þau, samkvæmt ákvörðun Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra.
Skipulagsstofnun telur að áhrif Hvammsvirkjunar í Þjórsá á landslag verði verulega neikvæð. Þetta kemur fram í áliti stofnunarinnar á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar virkjunar.
Tuttugu og þremur rússneskum sendiráðsstarfsmönnum var í dag vísað frá Bretlandi. Bretar saka Rússa um að hafa staðið að taugaeitursárás á fyrrverandi gagnnjósnara og dóttur hans. Rússar vísa ásökununum á bug.
Dæmi eru um að aldraðir hér á landi lifi undir sultarmörkum. Þetta sýnir meistararannsókn í næringarfræði.
Einn frægasti og áhrifamesti vísindamaður samtímans er allur. Stephen Hawking varð táknmynd fyrir vald hugans og þúsundir vísindamanna glíma enn við kenningar hans og spurningar um svarthol. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman og talaði við Gunnlaug Björnsson.
Þegar kom í ljós 2007 að tveir Rússar höfðu myrt njósnarann Alexander Litvinenkó árið áður var fjórum rússneskum sendiráðsmönnum vísað úr landi. Nú, tíu dögum eftir morðtilræði við Sergei Skripal og dóttur hans hyggst breska stjórnin vísa 23 rússneskum sendiráðsmönnum úr landi auk þess að beita öðrum aðgerðum og þvingunum. Sigrún Davíðsdóttir tók saman.
Bakgrunnur Sergeis Skripal. Anna Kristín Jónsdóttir.
Spegillinn 14. mars 2018
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir
Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson