Spegillinn

Spegillinn 14.11.2018


Listen Later

Spegillinn 14.11.2018.
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Fyrstu niðurstöður í umfangsmikilli rannsókn á áfallasögu kvenna sýna að fjórðungi kvenna hefur verið nauðgað eða tilraun verið gerð til að nauðga þeim. Arna Hauksdóttir, prófessor í Lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands, segir að það sé hærra hlutfall en hún hafi séð áður bæði í innlendum og erlendum rannsóknum. Um 20 prósent kvennanna höfðu orðið fyrir líkamlegu ofbeldi og helmingur þeirra orðið fyrir kynferðislegri áreitni.
Landvernd sendi í dag kvörtun til ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, vegna lagasetningar sem heimilar sjávarútvegsráðherra að veita laxeldisfyrirtækjum bráðabirgðaleyfi. Landvernd telur lagasetninguna vera brot á EES-samningnum.
Lögregla rannsakar tólf mál þar sem netþrjótar hafa stolið umtalsverðum fjármunum af íslenskum fyrirtækjum. Í einu málanna var áttatíu milljónum stolið. Slíkum málum hefur fjölgað. Málin eiga það sammerkt að brotist er inn í tölvukerfi fyrirtækja og jafnvel inn í tölvupóstsamskipti viðskiptafélaga. Netþrjótarnir látast starfa fyrir þekktan birgi en gefa til dæmis fyrirmæli um að greiða þurfi inn á annan reikning en vanalega.
Staðan í stjórnarmyndunarviðræðum í Svíþjóð er erfið og fréttaskýrendur segja vandséð hvernig hægt verði að mynda ríkisstjórn sem njóti stuðnings meirihluta þingsins. Andreas Norlén, forseti þingsins, lét í morgun greiða atkvæði um hvort Ulf Kristersson, leiðtogi hægri flokksins Moderaterna, nyti stuðnings til að mynda stjórn. Eins og spáð hafði verið naut hann aðeins stuðnings eigin flokks, Kristdemókrata og Svíþjóðardemókrata. Hinir flokkarnir í Alliansen, bandalagi mið- og hægri flokka, greiddu atkvæði gegn Kristersson.
Þingmenn stjórnarandstöðu sóttu hart að fjármálaráðherra á Alþingi um breytingartillögur meirihluta fjárlaganefndar fyrir aðra umræðu sem fram fer á morgun. Því er haldið fram að öryrkjar hafi setið eftir en fjármálaráðherra er ekki sammála því og segir það rangt. Þorsteinn Víglundsson varaformaður Viðreisnar sagði viðbrögð stjórnvalda nú vera hefðbundin, að skera niður hjá öldruðum og öryrkjum. Fjármálaráðherra segir kaupmátt eldri borgara hafa vaxið umfram kaupmátt allra annarra í landinu.
Manchester City hefur sýnt ótrúlega hugmyndaaugði til að komast fram hjá reglum evrópska knattspyrnusambandsins um fjárhagslega háttvísi. Útgjöld verða að tekjum, styrkir hækka og lækka að vild, dagsetningum samninga er breytt og peningarnir koma iðulega frá olíufurstanum í Abu Dhabi með einum eða öðrum hætti, þótt þeir komi stundum við í nokkrum vösum á leiðinni til að fela
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners