Spegillinn þriðjudaginn 14.ágúst 2018
Umsjónarmaður: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson
Fréttir 8:00 mín
Fjölskylda manns á Akureyri segist örmagna og ráðlaus, en hann hefur ítrekað verið sendur heim eftir að hafa sóst eftir að vera lagður inn á geðdeild. Hann er greindur með geðklofa og í neysluvanda.
Brúarslysið í Genúa á Ítalíu í morgun er það mannskæðasta sem orðið hefur með þessum hætti síðan um aldamót. Minnst 35 létu lífið þegar nærri 300 metra kafli Morandi-brúarinnar í borginni hrundi.
Æ fleiri Bretar styðja nú áframhaldandi aðild að Evrópusambandinu. Á meðan berst breska stjórnin við að ná í gegn umdeildum samning við ESB.
Algengast er að fólk sé náðað hér á landi vegna líkamlegra eða andlegra veikinda. Síðustu áratugi hefur allt frá einum upp í átta sakfelldum einstaklingum verið veitt náðun ár hvert.
Óvissa ríkir um það hversu mörg börn verða tekin inn í leikskóla í Reykjavík í haust.
Fjórir hafa boðið sig fram til formanns Neytendasamtakanna, en framboðsfrestur rennur út á morgun.
Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um stöðu leiksskólamála í Reykjavík þegar nýtt skólaár er að hefjast. Staðan í daggæslumálum í Reykjavík ræðst að hluta af því hvort tekst að taka elstu börnin inn á leikskóla. Í fyrra var misbrestur á því. Formaður starfshóps sem skilaði tillögum í vor segir kappsmál að stöðva flótta úr stéttinni og auka nýliðun. Ekki liggur fyrir hversu mörg börn verða tekin inn á leikskóla í Reykjavík í haust, þó að ágústmánuður sé hálfnaður. Það skýrist í næstu viku. Rætt er við Þórlaugu Ágústsdóttur, stjórnmálafræðing og fyrrum fulltrúa Pírata í skóla- og frístundaráði.
Brexit-óvissa og glundroði setja svip á bresk stjórnmál. Nýleg könnun á Brexit-afstöðu sýnir að stuðningur við Evrópusambands-aðild eykst. Þetta breytir stöðu stjórnarinnar í samningum við ESB. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Grindhvalavaðan sem synti inn í Kolgrafafjörð og tókst að reka út í morgun vekur spurningar um hvalategundir við Ísland, hegðun þeirra, vitsmuni og fleira. Kristján Sigurjónsson tekur upp þráðinn frá i Speglinum í gær og talar við Eddu Elísabetu Magnúsdóttir hvalasérfræðing og aðjunkt við Háskóla Íslands.