Notre dame kirkjan í París brennur og aftari turn hennar er hruninn. Eldtungur og mikill reykjarbólstur standa upp úr þaki dómkirkjunnar. Arnhildur Hálfdánardóttir, fréttamaður er í grennd við Notredame.
Bremsur rútu sem ekið var aftan á fólksbíl nærri Kirkjubæjarklaustri fyrir tveimur árum voru lélegar, rútunni var ekið of hratt og bílstjóri hennar brást of seint við aðstæðum. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa. Tveir létu lífið í slysinu. Ásrún Brynja Ingvarsdóttir segir frá.
Fjórfalt fleiri veiktust af mislingum í heiminum á fyrstu þremur mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra. Ástandið er sérstaklega slæmt í Afríku. Ásgeir Tómasson tók saman.
Borgaryfirvöld hafa útvegað ellefu ára einhverfri stúlku með geðraskanir skólavist í Hamraskóla eftir að móðir hennar skrifaði opið bréf fyrir helgi þar sem hún vakti athygli á því að dóttirin gæti ekki fengið skólavist eða meðferð. Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, segir að yfirvöld og þeir sem koma að svona málum þurfi að tala betur saman og passa að börn detti ekki á milli kerfa.
Fjármálaeftirlitið gerði í dag athugasemdir við síðu þar sem safnað er hlutafé til að stofna nýtt lágfargjaldaflugfélag.
Koma mjaldranna frestast enn.
-----------
Enginn nefndarmaður skrifar undir skýrslu um starfsgetumat sem félagsmálaráðherra fær í hendur eftir páska. Í skýrslunni eru tillögur um gjörbreytt framfærslukerfi öryrkja.
Minjastofnun vill virkja almenning til að aðstoða við að fylgjast með menningarminjum sem eru í hættu. Verið er að þróa app fyrir snjallsíma og spjaldtölvur sem gerir almenningi kleift að skrásetja ástand þeirra minja sem hann heimsækir.
Sonur tveggja mæðra. Nýlega fæddist 12 marka band með aðstoð grískra og spænskra lækna. Það sem var sérstakt við barnið var að í því væri erfðaefni þriggja, úr einum karli og tveimur konum, það því fætt tveimur mæðrum með kjarna eggfumu annarar og hvatberaerfðaefni hinnar. Erna Magnúsdóttir líffræðingur segir að vissulega sé hægt að segja að barnið sem fæddist eigi þrjá foreldra.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Jón Þór Helgason