Spegillinn

Spegillinn 15. desember 2021


Listen Later

Spegillinn 15. desember 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Samkomulag hefur náðst milli íslenska ríkisins og franska fjárfestingafélagsins sem kaupir fjarskiptanet Mílu. Fyrirtækin undirgangast kvaðir til að tryggja þjóðhagslega mikilvæga innviði. Áfram verður haldið með lagasetningu vegna kaupanna.
Omíkron-afbrigði kórónuveirunnar smitast sjötíu sinnum hraðar en önnur, að sögn vísindamanna í Hong Kong. Það verður að líkindum orðið ráðandi í Evrópu um miðjan janúar.
200 börn og ungmenni á flótta, sem sótt hafa um vernd hér á landi eru stödd hér yfir hátíðarnar í ár.
Ekki hefur verið tilkynnt að brotist hafi verið inn í tölvukerfi með log4j veikleikanum. Allir ómissandi innviðir og þjónusta starfa eðlilega, en árásartilraunum hefur fjölgað mikið.
Tómas Tómasson nýr þingmaður Flokks fólksins og oftast kenndur við Tommahamborgara flutti jómfrúarræðu sína á Alþingi í dag.
Áætlaður halli bæjarsjóðs Akureyrar á næsta ári er rúmar 600 milljónir en gert er ráð fyrir að næstu ár muni tekjur hækka meira en gjöld.
Lengri umfjöllun:
Kjarasamningur grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga rennur út um næstu áramót. Viðræður um nýjan kjarasamning hafa ekki borið árangur og nú hefur kjaradeilunni verið vísað til ríkissáttasemjara. Hann hefur boðað deilendur á samningafund á föstudaginn, 17. desember. En af hverju eru grunnskólakennarar með lausan samning núna, þegar kjarasamningar á almennum vinnumarkaði renna ekki út fyrir en í byrjun nóvember á næsta ári og flestir samningar opinberra starfsmanna hjá ríki og sveitarfélögum ekki fyrr en vorið 2023? Grunnskólakennarar voru aftarlega í röðinni þegar hafist var handa við að ganga frá samningum í kjölfar lífskjarasamninga við heildarsamtök launafólks í apríl 2019. Ekki var skrifað undir kjarasamning við grunnskólakennara fyrr en í byrjun september 2020, í annarri bylgju Covid faraldursins. Ljóst var að sveitarfélögin höfðu orðið fyrir fjárhagslegu höggi vegna hans og því var niðurstaðan sú að semja til skamms tíma, til 16 mánaða. Og nú er stundin að renna upp. Þorgerður Laufey Diðriksdóttir er formaður Félags Grunnskóakennara. Kristján Sigurjónsson ræddi við hana.
Hvítrússneski aðgerðasinninn og vídeóbloggarinn Sergej Tsíkanovski var í gær dæmdur til átján ára fangelsisvistar. Honum er gefið að sök að hafa stuðlað að glundroða og sáð hatri í samfélaginu. Svetlana Tsíkanovskaja, eiginkona hans og leiðtogi stjórnarandstöðunnar í landinu, segist tilbúin að reyna hið ómögulega til að þau geti hist fljótt aftur í nýju Hvíta-Rússlandi. Ar
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners