Forsætisráðherra lýsti vonbrigðum sínum með að Bandaríkjamenn hafi dregið sig úr Parísarsamkomulaginu þegar hún átti fund með utanríkisráðherra Bandaríkjanna í dag. Þá hvatti hún til þess að böndum yrði komið á útbreiðslu kjarnorkuvopna.
Undirbúningur verkfalla gæti hafist í næstu viku eftir að Samtök atvinnulífsins höfnuðu gagntilboði VR, Eflingar og Verkalýðsfélaga Akraness og Grindavíkur. Beðið er eftir útspili stjórnvalda í tengslum við kjarasamninga.
Fyrrverandi millistjórnandi hjá Icelandair gerðist sekur um alvarlegt trúnaðarbrot og misnotaði aðstöðu sína hjá félaginu gróflega. Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í innherjasvikamáli þar sem hann var dæmdur í átján mánaða fangelsi.
Bandaríkjaforseti lýsti í dag yfir neyðarástandi á landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna.
Ef stjórnvöld leggja ekki fram tillögur um aðgerðir sem gætu leitt til lausnar kjarasamninga eru útlit fyrir að undirbúningur verkfalla hefjist í næstu viku. Ljóst er, eftir að SA hafnaði gagntilboði í morgun, að bæði atvinnurekendur og verkalýðshreyfingin bíða þess að vita hvað stjórnvöld eru tilbúin að gera. Trúnaður ríkir um gagntilboðið sem VR, Efling og verkalýðsfélög Akraness og Grindavíkur lögðu fram á samningafundi í dag. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Halldór Benjamín Þorbergsson og Vilhjálm Birgisson.
Á morgun mótmæla gulvestungar í Frakklandi fjórtánda laugardaginn í röð. Ofbeldi og skemmdarverk hafa fylgt mótmælunum og Emmanuel Macron forseti hefur neyðst til að gera grundvallarbreytingar á stefnu sinni og áætlunum. Samskipti Frakka og Ítalíu hafa ekki verið svona slæm frá síðari heimstyrjöld. Gulvestungar eru æði mislitur hópur með óljós og misvísandi markmið. Virðingarleysið sameinar gulvestunga. Pálmi Jónasson segir frá.
Fyrsta, og hingað til eina, sakamál á hendur stjórnanda bresks banka 2008 er nú fyrir rétti í Bretlandi. Þáverandi forstjóri Barclays bankans og þrír starfsbræður hans eru ákærðir fyrir óeðlilegar greiðslur til fjárfesta frá Katar. Katverjar björguðu Barclays frá því að þurfa ríkisstuðning sem hefði þýtt yfirtöku ríkisins á bankanum. Málið er hliðstætt íslenska al Thani málinu og virðist benda til að katverskir fjárfestar vilji almennt fá vænar greiðslur fyrir að fjárfesta. Sigrún Davíðsdóttir segir frá
Umsjón Arnar Páll Hauksson
Tæknimaður Mark Eldred