Það skiptir miklu að leiðbeina og aðstoða fólk sem fær upplýsingar um að líkur séu á að það þrói með sér alvarlega sjúkdóma en það sé ekki skilið eftir úti í kuldanum segir forstjóri Persónuverndar. Búist er við töluverðu álagi hjá erfðaráðgjöf Landspítalans. Aðalsteinn Kjartansson talar við Helgu Þórsdóttur forstjóra Persónuverndar og Vigdísi Stefánsdóttur, erfðaráðgjafa á Landspítalanum.
Ísraelsmenn hafa komið fram af mikilli stillingu gagnvart mótmælum Palestínumanna á Gaza. Þetta fullyrti Nikki Haley sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum á skyndifundi Öryggisráðsins síðdegis. Jóhann Hlíðar Harðarson segir frá og heyrist í Nikolay Mladenov, tengilið Sameinuðu þjóðanna við Miðausturlönd og Nikki Haley.
Landsvirkjun hagnaðist um rúma ellefu milljarða í fyrra, sem er methagnaður. Jóhann Bjarni Kolbeinsson talar við Hörð Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar.
Um hundrað gestum ofbauð og þeir gengu út af frumsýningu nýjustu myndar danska leiksstjórans Lars von Triers í Cannes.
Til er urmull gagna og upplýsinga um fólk ekki síst heilbrigðisupplýsingar hafi það tekið þátt í visindarannsóknum. Í dag var opnaður vefurinn Arfgerði á vegum Íslenskrar erfðagreiningar þar sem fólk getur kannað hvort líkur séu á að það beri BRCA2 genið sem eykur hættu á krabbameinum, ef það er arfberi er því beint til Landspítalans um erfðaráðgjöf. Hvað er erfðaráðgjöf og hvaða máli skiptir upplýst samþykki? Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Vigdísi Stefánsdóttur, erfðaráðgjafa.
Þjóðskrá á að tryggja að lögheimili fólks sé rétt skráð en það er erfitt að svara því hversu vel lögheimilsskráningar endurspegla raunverulega búsetu. Arnhildur Hálfdánardóttir tók saman og talar við Ástríði Jóhannesdóttur, sviðsstjóra hjá Þjóðskrá Íslands.
Í bresku stjórninni og þinginu er hart tekist á um tvær lausnir varðandi hvað eigi að koma í staðinn fyrir tollabandalag Evrópusambandsins. Undanfarnar vikur hefur hver vika átt að vera úrslitavikan en enn er engin ákvörðunin. Í Brussel yppa menn öxlum, báðar lausnirnar séu óraunsæjar. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Umsjónarmaður: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Grétar Ævarsson