Spegillinn

Spegillinn 15. mars 2019


Listen Later

Starfsgreinasambandið hótar að slíta samningaviðræðum við atvinnurekendur og hefja undirbúning verkfalla komi ekkert nýtt frá SA um helgina. Líklegt er að iðnaðarmenn slíti líka viðræðum.
Dómstólasýslan vill að lögum verði breytt til að hægt verði að fjölga dómurum við Landsrétt. Vegna dóms Mannréttindadómstólsins munu fjórir dómarar lands ekki taka þátt í dómsstörfum.
Ingimundur Sigurpálsson er hættur sem forstjóri Íslandspósts. Hann tilkynnti þetta á aðalfundi félagsins í dag.
Svissneskur ostagerðarmaður og nokkrir listaskólanemar hafa komist að því að bragðgæði osts breytast eftir því hvaða tónlist er leikin meðan hann þroskast. Hip hop þykir skila mjúku blómabragði.
Starfsgreinasambandið hótar að slíta samningaviðræðum við Samtök atvinnulífsins ef ekki koma fram nýjar hugmyndir eða tillögur frá samtökunum nú um helgina. Ef viðræðum verður slitið hefst undirbúningur verkfalla. Iðnaðarmenn munu að öllum líkindum feta í fótspor Starfsgreinasambandsins og slíta viðræðum ef ekkert nýtt kemur fá SA. Arnar Páll Hauksson talar við Björn Snæbjörnsson.
Ódæðismaðurinn í Christchurch á Nýja-Sjálandi vísaði í yfirlýsingu til atburða á Norðurlöndum, sem hefðu verið hvati hans að morðum í tveimur moskum. Yfirlýsingin þykir sækja mjög til skrifa Anders Behrings Breiviks. Anna Kristín Jónsdóttir segir frá.
Umhverfisþing Sameinuðu þjóðanna stendur nú yfir í Naíróbí í Kenýa og í inngangi Antóníos Guterres, aðalritara Sameinuðu þjóðanna að umhverfisskýrslu þeirra, sem kom út í vikunni, er ástand jarðarinnar sjúkdómsgert og talað um hvernig manngerðar umhverfisógnir sem ógna jörðinni ógna líka heilsu manna í auknum mæli. Skýrslan dregur upp dökka mynd af þeim fjölbreyttu umhverfisógnum sem steðja að jörðinni en í skýrslunni eru líka ræddar lausnir sem margar hafa jákvæð samlegðaráhrif og við kveður gamalkunnugt stef, það þurfi bara pólitískan vilja. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá og talar við Guðmund Inga Guðbrandsson.
Umsjón Arnar Páll Hauksson
Tæknimaður mark Eldred
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

29 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners