Spegillinn

Spegillinn 15. september 2021


Listen Later

Spegillinn 15. september 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Gríðarlegur hiti og mikil gasmengun fylgdi auknu hraunflæði á gosstöðvunum í dag. Vettvangsstjóri lögreglunnar á Suðurnesjum segir að margir átti sig ekki á hættunni. Þyrla landhelgisgæslunnar þurfti að sækja tvo út á hraunið í dag.
Eldfjallafræðingur segir að hraunbelgir munu ítrekað verða til í hrauninu í Geldingadölum og springa með svipuðum afleiðingum og í dag þegar eldár tóku að renna ört úr gosinu.
Sóttvarnalæknir segir að verið sé að taka ákveðna áhættu með því að leyfa 1.500 manns að koma saman ef þeir hafa tekið kórónuveiruhraðpróf. Embætti landlæknis hefur fengið margar umsóknir um markaðsleyfi fyrir slík próf.
Eitt ár gæti liðið þar til framleiðsla hæfist að nýju gas- og jarðgerðarstöð Sorpu í Álfsnesi. Mygla hefur fundist í húsnæðinu.
Liz Truss, ráðherra utanríkisviðskiptamála, er nýr utanríkiráðherra Bretlands. Boris Johnson forsætisráðherra hóf í dag hrókeringar í ríkisstjórninni.
Lengri umfjöllun:
Nú eru tíu dagar til alþingiskosninga 25. september. Á mánudag voru málefni ungs fólks til umræðu í Speglinum, hvaða málaflokkar væru þeim hópi efst í huga. Í dag eru það málefni eldra borgara, roskinna, aldraðra, 60 plús eða hvað við viljum kalla þennan hóp. Og hann er býsna fjölmennur. Um 20 prósent landsmanna er 60 ára og eldri - hátt í 74 þúsund manns og nærri 12 prósent landsmanna er 67 ára eða eldri eða ríflega 45 þúsund manns. Helgi Pétursson formaður Landssambands eldri borgara og Ingibjörg H Sverrisdóttir formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni ræða málin í spjalli við Kristján Sigurjónsson.
Breskir fjölmiðlar þreytast ekki á að endurtaka að Emma Raducanu, sem sigraði á opna bandaríska tennismótinu nýlega, var fyrir nokkrum mánuðum venjuleg skólastúlka að taka stúdentspróf. Raducanu þykir sýna smitandi leikgleði, sem í viðbót við uppruna hennar og hæfileika fá breska fjölmiðla til að spá því að hún tekjumöguleikar hennar slái öll met. Allt þetta veitir innsýn í peningamaskínu íþróttanna. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners