Ekki var tekið á móti tilkynningu árið 2008 til Barnaverndar vegna meints kynferðisafbrotamanns í samræmi við verkferla. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur lagt fram áætlun til að auka öryggi barna og bæta ráðningarferli starfsmanna.
Skólastjóri Verslunarskólans segir að nemendur muni ekki gjalda þess að framkvæmd samræmdu prófanna misheppnaðist, þegar kemur að umsókn um skólavist.
Bandarísk stjórnvöld ætla að beita Rússa refsiaðgerðum, vegna tölvuárása sem ætlað var að hafa áhrif á niðurstöður forsetakosninganna í Bandaríkjunum 2016.
Dæmi eru um að börn með einhverfu, geðrænan vanda og aðrar raskanir, mæti ekki í grunnskóla svo mánuðum skiptir, án þess að skólayfirvöld tilkynni barnaverndaryfirvöldum um það eða bregðist við.
Börn sem fara ekki í skóla. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Sigurrós Á. Gunnarsdóttur framkvæmdastjóri Einhverfusamtakanna og Sigrúnu Birgisdóttur
framkvæmdastjóra Sjónarhóls.
Pútin fastur í sessi. Dangný Hulda Erlendsdóttir talar við Dmitry Dubrovsky mannréttindasérfræðing í Pétursborg.
Gul stéttarfélög. Arnar Páll Hauksson ræðir við Gunnar Pál Pálsson, formann Félags lykilmanna.