Spegillinn 15.11.2018
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Theresa May ætlar að verjast andstöðu við Brexit-samkomulag sitt með kjafti og klóm. Hún kynnti samninginn í breska þinginu í dag á meðan samflokksmenn hennar lögðu á ráðin um að koma henni frá völdum.
Tvær flugvélar á leið til Akureyrar í gærkvöld þurftu að hringsóla yfir vellinum í dágóðan tíma, þar sem starfsmaður á kvöldvakt í flugturninum hefur aðeins takmarkað leyfi til að heimila lendingu.
Krónan ætti að styrkjast á næsta ári, segir sérfræðingur hjá Arion banka. Lækkun krónunnar að undanförnu sé ekki í samræmi við stöðuna í efnahagslífinu.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir ekkert svigrúm til skattahækkana. Hann gefur lítið fyrir breytingartillögur Samfylkingarinnar við fjárlagafrumvarpið upp á 24 milljarða króna en fjármagna á þær með hækkun gjalda og skatta. Hækkanirnar bitna ekki á hinum almenna Íslendingi, segir þingmaður Samfylkingarinnar.
Tyrkir krefjast alþjóðlegarar rannsóknar á morðinu á sádiarabíska blaðamanninum Jamal Khashoggi og segja brýnt að varpa ljósi á allar hliðar málsins. Ráðamenn í Sádi-Arabíu hafna slíkri rannsókn.
Íslenskt fyrirtæki hefur verið tilnefnt til evrópsku geimferðarverðlaunanna fyrir þróun á sjálfvirkum drónum.
Lengri umfjallanir:
Sigrún Davíðsdótti fór yfir stöðu Theresu May og átökin í breska þinginu í dag frá London. Hún kom bein inn í þáttinn frá London þar sem hún var stödd fyrir utan þinghúsið Westminister höll við norðurbakka Thames árinnar.
Þó að EES samningurinn kveði á um að öryrkjar sem flytja milli landa eigi ekki að tapa áunnum réttindum greiða Danir öryrkjum undir fertugu ekki örorkulífeyri. Anna Elísabet Sæmundsdóttir, sérfræðingur á Tryggingastofnun segir að miklar breytingar hafi orðið almannatryggingalögum í Evrópu á síðustu árum. Arnar Páll Hauksson tók saman.
Íslendingar eru ennþá að gera upp hrunið tíu árum síðar. Það skildi marga eftir í sárum en fjölmargir græddu á því. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Þórólf Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, um þá sem græddu á hruninu. Það voru til dæmis, vildarvinir bankanna, lukkuriddarar sem leituðu að gimsteinum í rústunum og þeir sem græddu á fasteignamarkaðinum.