Borgarstjóri segir nauðsynlegt að fjölga valkostum á húsnæðismarkaði fyrir leigjendur og tekjulægstu hópana. Byggja þarf hátt í fjögur þúsund íbúðir í Reykjavík á næstu árum, samkvæmt nýrri skýrslu.
Ákveðið hefur verið að ráðast í sértækar aðgerðir til að gera ungu og tekjulágu fólki kleift að kaupa sér íbúðahúsnæði. Þetta var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun.
Stórir framleiðendur eins og þeir sem eiga vörumerkin Dove og Neutral hafa hætt að nota plastagnir í snyrtivörur. Sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun segir að fyrirtæki taki nú mjög hratt við sér, því neytendur vilji ekki kaupa vörurnar.
Það má ekki fara með íslenskuna eins og brothætta kristalsskál en samt verður að gæta þess að þráðurinn sem tengir við sögu og menningu þjóðarinnar slitni ekki, segir handhafi verðlauna Jónasar Hallgrímssonar.
Framvindan síðan það fréttist á þriðjudaginn að fyrir lægi samningur Breta við Evrópusambandið um úrgöngu Breta úr ESB hefur einkennst af uppþotum í stjórnarflokknum. Það er bæði óvíst hvort Theresa May forsætisráðherra heldur embættinu og tekst að koma samningnum í gegnum breska þingið. Heyrum fyrst May verja samninginn í gær. Sigrún Davíðsdóttir.
Þeir sem vilja forðast snyrtivörur sem innihalda plastagnir lenda oft í vandræðum þegar þeir standa fyrir framan hillurnar í búðunum því ekki er augljóst hvaða vörur eru umhverfisvænar Til að bæta úr því fór Bergljót Baldursdóttir út í búð með Birgittu Stefánsdóttur, sérfræðingi hjá Umhverfisstofnun.
Dagur íslenskrar tungu hefur verið haldinn hátíðlegur víða um land í dag. Viðurkenningar hafa verið veittar, ráðstefnur haldnar, rannsóknir kynntar og ágætustu menn og konur velt fyrir sér framtíð tungunnar. Spegillinn settist niður með Sigrúnu Birnu Björnsdóttur, formanni Félags móðurmálskennara, og Atla Snæ Ásmundssyni háskólanema og formanni Mímis, Félags stúdenta í íslenskum fræðum og almennum málvísindum, til þess að velta vöngum yfir tungumálinu.