Spegillinn

Spegillinn 15.okt 2021


Listen Later

Spegillinn 15.okt 2021
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Þingmaður breska Íhaldsflokksins var stunginn til bana á stjórnmálafundi í Essex á Englandi í dag. Forsætisráðherra Breta og fyrsti ráðherra skosku heimastjórnarinnar segja að tryggja þurfi betur öryggi þingmanna.
Flokkarnir þrír sem ræða myndun nýrrar sambandsstjórnar í Þýskalandi hafa komist að bráðabirgðasamkomulagi um stjórnarmyndun.
Norska lögreglan rannskar hvers vegna lögreglan í Kongsberg missti ódæðismanninn sem myrti fimm manns á miðvikudagskvöld úr höndum sér áður en hann lét til skarar skíða.
Mjög vel hefur gengið að stýra langflestum ferðamönnum sem lagt hafa leið sína á gosstöðvarnar á Reykjanesskaga frá því gos hófst. Svokallaðir eldfjalladólgar hafa þó gert björgunarsveitarmönnum og lögreglu lífið leitt.
Formaður VR segir stjórnvöld eiga að setja reglur um að leiguverð taki mið af ráðstöfunartekjum. Ekki hafi verið staðið við mikilvæg atriði í lífskjarasamningnum.
Búist er við mikilli úrkomu á Austurlandi í byrjun næstu viku. Uppsöfnuð úrkoma gæti orðið allt að 120 millimetrar og að mati Almannavarna gæti þurft að rýma hús nærri stóra skriðusárinu ofan byggðarinnar á Seyðisfirði.
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNHCR, vill að Norðurlöndin hraði og einfaldi málsmeðferð í málum afganskra flóttamanna sem þegar hafa fengið vernd og vilja fá fjölskyldumeðlimi til sín.
Nýjasti landneminn í lífríki Íslands er hnífskel sem nefnist sindraskel. Skelin er flugbeitt og ílöng og talið er að hún hafi borist hingað til lands með kjölvatni skipa.
Lengri umfjöllun:
Hryðjuverk eða óstjórnlegt æði? Skipulagði Espen Andersen Braaten hryðjuverk í nafni islam eða rann á hann morðæði á miðvikudagskvöldið. Fimm létu þá lífið á Kóngsbergi í Noregi? Af hverju missti lögregan hann úr höndum sér áður en morðin voru framin. Gísli Kristjánsson í Ósló hefur fylgst með framvindunni.
Stýring ferðamanna að eldgosinu á Reykjanesskaga hefur gengið vel segir Jónas Guðmundsson verkefnastjóri í slysavörnum hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Hann ræddi í dag árangurinn af stýringunni á ráðstefu Landsbjargar - Slysavarnir 2021 - sem nú stendur yfir í Reykjavík. Talið er að á milli 350 til 400 þúsund manns hafi gengið að gosinu frá því að það hófst þann 19. mars - fyrir tæpum sjö mánuðum. Kristján Sigurjónsson talar við Jónas.
Jöfnun aðstöðumunar milli og innan landshluta er stóra loforð Borisar Johnsons forsætisráðherra Breta. Vandinn er bæði að aðstöðumunurinn er mikill og verður ekki jafnaður á einu kjörtímabili. En líka að það er mjö
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners