Um 70 björgunarsveitarmenn hafa nú síðdegis aðstoðað fólk í vonskuveðri og ófærð í kringum höfuðborgarsvæðið. Hellisheiði, Mosfellsheiði og Þrengsli eru lokuð. Lyngdalsheiði sömuleiðis.
Borgarfulltrúar tókust á um vatnsmengun á borgarstjórnarfundi í dag. Borgarstjóri sagði rétt að hafa vaðið fyrir neðan sig og upplýsa fólk. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks sagði að einfalt hefði verið að vara alla borgarbúa við með smáskilaboðum.
Í einni af borholum Veitna mældust sjötíu og fjórum sinnum fleiri gerlar en forsvarsmönnum þykir eðlilegt.
Ákveðið hefur verið í tengslum við viðræður ríkisstjórnar og aðlila vinnumarkaðarins, að skipa vinnuhóp til að koma með tillögur um starfshætti kjararáðs, og til að mæta gagnrýni sem beinst hefur að úrskurðum ráðsins.
Vatnsmengun í neysluvatni. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá og ræðir við Ólöfu Snæhólm Baldursdóttur, upplýsingafulltrúa Veitna.
Nefnd um breytingar á kjararáði. Arnar Páll Hauksson segir frá.
Liðsmenn íslamska ríkisins vilja aftur heim. Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá.
Umsjón: Arnar Páll Hauksson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon