Spegillinn föstudaginn 16.feb 2018
Umsjónarmaður: Kristján Sigurjónsson
Tillögur starfshóps um kjararáð skapa aukinn frið á vinnumarkaði til langs tíma. Þetta segir forsætisráðherra.
Starfsmaður Barnaverndar, sem grunaður er um kynferðisbrot gegn fjölda barna, var í dag úrskurðaður í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald.
Sif Konráðsdóttir aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfisráðherra er hætt störfum. Umhverfisráðherra greindi frá þessu í dag.
Um það bil helmingur þingmanna fékk engar endurgreiðslur vegna aksturs í fyrra. Aðrir fengu frá nokkrum tugum þúsunda upp í á fimmtu milljón.
Samband íslenskra sveitarfélaga, Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri lögðu fyrir menntamálaráðherra í dag tillögur til að koma í veg fyrir yfirvofandi kennaraskort í grunnskólum.
Íbúðum hér á landi fjölgar allt of hægt. Gera má ráð fyrir að skortur verði á íbúðum næstu þrjú árin sem er mikið áhyggjuefni, segir deildarstjóri á húsnæðissviði Íbúðalánasjóðs.
Kristján Sigurjónsson ræddi við Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra um tillögur til að draga úr yfirvofandi kennaraskorti, pisakönnun, brottfall úr skólum o.fl. (Bein útsending)
María Sigrún Hilmarsdóttir talaði við Baldur Sigurðsson um hrakandi lesskilning barna og hvað sé til ráða.