Theresa May, forsætisráðherra Bretlands segir að þátttaka Breta í loftárás á efnavopnastöðvar Sýrlendinga á laugardag hafi verið lögmæt og siðferðislega rétt. Sérfræðingar frá Alþjóðlegu efnavopnastofnuninni hafa enn ekki fengið að fara til bæjarins Douma í Sýrlandi, þar sem talið er að gerð hafi verið efnavopnaárás í síðustu viku.
Dómsmálaráðherra telur sjálfstæði ákæruvalds og löggæslu vel tryggt með núverandi fyrirkomulagi. Samtök ríkja gegn spillingu segja hættu á pólitískum afskiptum af störfum lögreglu.
Formaður Samtaka atvinnulífsins vill að stjórnvöld efni þegar í stað til viðræðna um breytingar á tekjuskatts- og bótakerfum msem gagnist þeim með lægstu launin.
Kærunefnd útlendingamála gagnrýnir Útlendingastofnun í úrskurði vegna hælisleitanda sem senda átti til Danmerkur í október á síðasta ári.
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Framsóknarflokkinn af kröfu ráðgjafafyrirtækisins Forystu. Flokkurinn þarf því ekki að borga kosningabaráttu Sigmundar Davíðs eins og það er orðað.
Norska ríkisstjórnin hefur ekki lýst yfir stuðningi við aðgerðir Bandaríkjananna, Breta og Frakka eftir efnavopnaárásina í Douma í Sýrlandi. Norskir ráðamenn hafa látið orðalagið „ að hafa skilning á“ duga en styðja þó yfirlýsingu NATO um stuðning. Þetta hefir vakið upp spurningar um hvað ráðherrar í ríkisstjórn Erna Solberg séu eiginlega að fara. Gísli Kristjánsson í Noregi fer yfir málið í Speglinum.
Viðtal George Stephanopolous við James Comey fyrrverandi forstjóra bandarísku alríkislögreglunnar FBI sem sýnt var í gærkvöld á ABC sjónvarpsstöðinni hefur vakið mikla athygli. Hann segir að Donald Trump sé siðferðislega óhæfur til að gegna embætti forseta Bandaríkjanna. Pálmi Jónasson rekur málið í Speglinum.
Fleiri þúsund Berlínarbúar komu saman um helgina og mótmæltu hækkandi húsnæðisverði í borginni. Borg sem hefur verið rómuð fyrir að vera suðupottur menningar og laðar að sér nýja íbúa og ferðamenn en er nú líka suðupottur erlendrar fjárfestingar. Nýlega var greint frá því að Berlín sé sú borg þar sem húsnæðisverð hækkaði mest í heiminum árið 2017. Halla Ólafsdóttir fjallar um málið í Speglinum.
Umsjónarmaður: Pálmi Jónasson