Spegillinn

Spegillinn 16.maí 2022


Listen Later

Spegillinn 16.maí 2022
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Óformleg samtöl milli oddvita stjórnmálaflokkanna í Reykjavík um hugsanlegt meirihlutasamstarf hafa farið fram í dag. Óvíst er hvort Framsókn hallar sér til hægri eða vinstri í formlegum viðræðum.
Utanríkisráðherra ætlar að leggja fyrir Alþingi síðar í vikunni þingsályktunartillögu um að ísland samþykki væntanlegar umsóknir Finna og Svía um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Ríkisstjórnin samþykkti þetta á aukafundi í morgun.
Recep Tayyip Erdogan forseti Tyrklands ætlar ekki að samþykkja umsóknir Finna og Svía um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Hann sagði skömmu fyrir fréttir ótækt að samþykkja umsóknina þar sem ríkin hefðu ekki beitt sér af nægri hörku gegn hryðjuverkasamtökum. Þau hefðu skotið rótum í Finnlandi og Svíþjóð.
Öll bandalagsríkin, Tyrkland þar með talið, þurfa að samþykkja nýjar aðildarumsóknir og því ljóst að afstaða Tyrkja þarf að breytast ef Finnland og Svíþjóð eiga að fá inngöngu í bandalagið.
Læknir sem sætir lögreglurannsókn, grunaður um að hafa valdið ótímabæru andláti níu sjúklinga, er farinn í leyfi frá störfum á Landspítalanum.
Rúm milljón hefur smitast af kórónuveirunni í Norður Kóreu. Kim Jong-un einræðisherra landsins kennir embættismönnum og stjórnendum innan heilbrigðiskerfisins um misheppnuð viðbrögð við veirunni.
Lengri umfjöllun:
Það fylgir lýðræðislegum kosningum, hvort sem er til þings eða sveitarstjórna, að sumir vinna, aðrir tapa og einhverjir standa í stað. Frambjóðendur, flokkar og stuðningsmenn túlka síðan úrslitn eftir sínu höfði og oft snýst tap upp í sigur og sigur í tap eftir því hver talar og skrifar. Það er þó tæplega hægt að deila um að tveir af sigurvegurum sveitarstjórnarkosninganna á laugardag eru þau Halla Karen Kristjánsdóttir oddviti Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ og Guðmundur Árni Stefánsson sem leiddi lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Framsóknarmenn voru með engan bæjarfulltrúa í Mosfellsbæ og fengu 2,9 prósent atkvæða í kosningunum fyrir fjórum árum. Núnar fékk flokkurinn 32,2 prósent atkvæða og fjóra bæjarfulltrúa undir forystu Höllu Karenar. Samfylkinging í Hafnarfirði með Guðmund Árna efstan jók fylgi sitt úr 20,1 prósenti í 29 prósent og fékk fjóra bæjarfulltrúa en var með tvo áður. Halla Karen Kristjánsdóttir og Guðmundur Árni Stefánsson ræða við Kristján Sigurjónsson.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur lýst yfir óvissustigi vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga. Þar hafa orðið 16 skjálftar yfir þremur að stærð síðustu tvo só
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

21 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

19 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

32 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

42 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

12 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

30 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners