Lögreglan á Suðurlandi hefur miklar áhyggjur af öryggi ökumanna á og við brúna yfir Núpsvötn. Varðstjóri segir að brúin sé stórhættuleg.
Gamlar litlar kirkjur um allt land eru veikasti punkturinn í brunavörnum gamalla húsa á Íslandi, segir forstjóri Mannvirkjastofnunar. Stofnunin hefur ásamt Minjastofnun útbúið leiðbeiningar um brunavarnir í friðlýstum kirkjum hér á landi. Tvö hundruð og fjórtán friðlýstar kirkjur eru á Íslandi.
Síðasta haftið í Dýrafjarðagöngum var sprengt í dag. Áætlað er að göngin verði opnuð fyrir umferð í september á næsta ári.
Fyrrverandi forseti Perús svipti sig lífi í dag þegar til stóð að færa hann í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á mútumálum sem hann var grunaður um að tengjast.
Hreyfing andstæðinga veggjalda í Noregi ætlar að bjóða fram í að minnsta kosti 11 sveitarfélögum í sveitarstjórnarkosningunum sem verða í haust.
Björn Karlsson, forstjóri Mannvirkjastofnunar segir að veikasti punkturinn í brunavörnum gamalla húsa hér á landi séu gamlar kirkjur um allt land. Mannvirkjastofnun og Minjastofnun hafa gefið út leiðbeingar um brunavarnir í friðlýstum kirkjum hér á landi. Bergljót Baldursdótturtalaði við Björn.
Í nýlegri samantekt Sameinuðu þjóðanna er til þess tekið að umhverfinu geti stafað hætta af óvarlegri umgengni við nýja erfðatækni. Henni hefur fleygt fram á síðustu árum og nú er hægt að erfðabreyta lífverum af mikilli nákvæmni og miklu hraðar en áður var mögulegt. Því sé nauðsynlegt að gæta að regluverki og samræmi á alþjóðavísu og stíga varlega til jarðar. Mögulega sjái menn hvorki fyrir hvaða áhrif verða af stórtækum inngripum með líftækni né í höndum áhugamanna. Erna Magnúsdóttir líffræðingur og dósent við Háskóla Íslands er ekki svo uggandi en skilur að menn vilji hafi varann á. Anna Kristín Jónsdóttir.
Flokkur andstæðinga veggjalda býður fram í að minnsta kosti 13 sveitarfélögum í sveitarstjórnarkosningunum sem verða í Noregi í haust. Flokkurinn gæti komist í oddaaðstöðu í Bergen þar sem fylgi hans mælist um 17%. Arnar Páll Hauksson segir frá.