Spegillinn

Spegillinn 17. desember 2018


Listen Later

Spegillinn mánudaginn 17. Des 2018
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Forsætisnefnd Alþingis, forseti og varaforsetar, hafa allir sagt sig frá Klausturmálinu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu froseta Alþingis. Nefndarmenn hafi með ummælum sínum um málið gert sig vanhæfa til að vísa málinu til siðanefndar þingsins.
Mennirnir tveir sem týndust í fjallgöngu á Kirkjufelli í Grundarfirði síðdegis í dag eru fundnir heilir á húfi.
Tekist var á um vitnaleiðslumál þingmanna Miðflokksins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Lögmaður þingmannanna sagði þurfa að tryggja gögn. Lögmaður konu sem hleraði samtal þeirra sagði þá ganga of langt.
Minnst tólf manns féllu í dag í hörðum bardögum í hafnarborginni Hodeida í Jemen. Vopnahlé á að taka gildi í borginni á morgun. Tugir hafa fallið síðustu daga. Fulltrúar uppreisnarmanna og stjórnvalda í Jemen samþykktu í síðustu viku að draga hermenn og vopn sín frá Hodeida, til að hægt verði að flytja þangað hjálpargögn og matvæli.
Japanska lyfjafyrirtækið Fuji pharma hefur fjárfest fyrir 6,2 milljarða króna í íslenska lyfjafyrirtækinu Alvotech
Að minnsta kosti einn er látinn og yfir áttatíu slasaðir eftir að stuðningsmenn forsetaframbjóðenda í Austur-Kongó tókust á um helgina. Gengið verður til atkvæða um eftirmann Josephs Kabila forseta á sunnudaginn kemur.
Íbúar líta á byggðaþróun í Árneshreppi sem algjört neyðarástand segir verkefnistjóri brothættra byggða í hreppnum. Verkefnastjórn hefur sent ríkistjórnininni ákall um einangrun sveitarfélagsins sé rofin með bættum samgöngum.
Lengri umfjallanir:
Atvinnurekendur vilja stytta vinnuvikuna með því að fella niður kaffitíma. Dregið verði verulega úr yfirvinnu og dagvinnulaun hækkuð í hlutfalli við það. Einnig að dagvinnutímabilið verði frá sex á morgnana til sjö á kvöldin.
Starfsgreinasambandið hafnar þessum tillögum. Arnar Páll Hauksson segir frá og ræðir við Björn Snæbjörnsson formann Einingar á Akureyri.
Alvarlegar sýkingar af völdum numókokka hefur fækkað verulega frá því farið var að bólusetja börn við bakteríunni og í sumum tilfellum hefur henni nánast verið útrýmt Þetta kemur fram í niðurstöðum umfangsmikillar rannsóknar.
Bergljót Baldursdóttir ræðir við Samúel Sigurðsson lækni, sem varði doktorsritgerð sína í læknavísindum í vikunni. Doktorsrannsókn hans var hluti af mjög umfangsmiklum rannsóknum á áhrifum bólusetningar við pneumokokkum. Niðurstöðurnar sýna að alvarlegar sýkingar vegna pneumókokka eru nánast horfnar eftir að farið var að bólusetja börn við bakteríunni.
Wow hefur mikið
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners