Umsjón: Arnar Páll Hauksson
Tæknimaður: Mark Eldred
Fiskistofu er ómögulegt að sinna lögbundnu eftirliti og stjórnvöld verða að grípa til aðgerða. Þetta kemur fram í úttekt Ríkisendurskoðunar á Fiskistofu.
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag Sindra Þór Stefánsson í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir aðild sína að gagnaversmálinu.
Stjórnmálafræðingur segir að stærsta og erfiðasta mál ríkisstjórnarinnar á næstunni verði kjarasamningar.
Hvalasérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun segir að of mikil óvissa sé um áhrif þess að fækka hvölum, til að hægt sé að nefna tölur um áhrif þess á fiskistofna í kringum landið.
Það skýrist í kvöld hvort það tekst að mynda meirihlutastjórn hægriflokkanna í Noregi. Það yrði í fyrsta sinn í hartnær 40 ár.
Rætt verður við formennn BSRB og BHM í Speglinum um áherslur þeirra í komandi kjaraviðræðum.
Og staðan í leik Makedóníu og Íslands á HM í handbolta er .16 16
Lengri umfjallanir:
Það sér ekki fyrir endann á kjaraviðræðunum sem nú standa yfir milli Samtaka atvinnulífsins og stéttarfélaganna innan ASÍ. Samningar voru lausir nú um áramótin. En það styttist í að yfir 150 samningar losni. Samningar félaga innan BSRB og BHM renna út í lok mars. Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður BHM eru mættar hingað í Spegilinn til að ræða um samningalotuna sem eru framundan og hvaða áherslur verða í kröfum þessara samtaka. Arnar Páll Hauksson stýrir umræðum
Í skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ um þjóðhagslega hagkvæmni hvalveiða segir að það sé afar líklegt að át hvala hafi áhrif á stærð fiskistofna við Ísland. Með því að auka hvalveiðar megi auka aflaverðmæti um tugi milljarða. Gísli Víkingsson, sjávarvistfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun segir höfund skýrslunnar ganga lengra en Hafrannsóknastofnun sé tilbúin að gera. Mikil óvissa ríki um áhrif hvalveiða á fiskistofna. Aðalatriðið sé þó niðurstaða skýrslunnar.
Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá og talar við Gísla Víkingsson.