Spegillinn

Spegillinn 17. September 2018


Listen Later

Fréttir:
Erlendur starfsmaður á veitingahúsi í Reykjavík segir að svo virðist sem atvinnurekendur á veitinga- og gistihúsum, sem brjóta á starfsfólki, telji að ekkert geti snert þá og þeir geti óáreittir haldið áfram iðju sinni. Hún hvetur starfsfólk til að hafa samband við stéttarfélög. Bergljót Baldursdóttir talaði við Önnu Mörtu Marjankowska.
Heilbrigðisráðherra vill leiðrétta mismunun hjá börnum með fæðingargalla eins og til dæmis klofinn góm, hvað varðar endurgreiðslur fyrir tannréttingar. Hún segir að málið verði skoðað í ráðuneytinu svo hægt verði að breyta reglugerð til að jafna stöðu allra barna með fæðingargalla. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir tók saman
Vonast er til að nýr aðflugsbúnaður á Akureyrarflugvelli verði tekinn í notkun eftir eitt ár. Upplýsingafulltrúi Isavia segir að samkvæmt mati erlendra sérfræðinga komi búnaðurinn að góðum notum. Jón Þór Kristjánsson talaði við Guðjón Helgason
Við ljósleiðaravæðingu í dreifbýlum sveitarfélögum hafa skapast tækifæri fyrir nýja starfsemi í víða þar sem nú er komið háhraða netsamband. Þannig má efla starfsstöðvar þar sem starfsemi er í lágmarki í dag. Ágúst Ólafsson sagði frá og talaði við Silju Jóhannesdóttur.
Jafnréttismál færast á ábyrgð forsætisráðuneytis um leið og velferðarráðuneytinu verður skipt upp í heilbrigðisráðuneyti og félagsmálaráðuneyti. Stefnt er að því að breytingarnar taki gildi fyrsta janúar. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir tók saman.
Lengri umfjallanir:
Afstaða Theresu May forsætisráðherra Breta er að valið standi á milli hennar áætlunar um úrgöngu úr Evrópusambandinu eða að enginn samningur náist. En samningur við ESB um úrgöngu er enn ekki í höfn, alveg óljóst hvert framtíðarsambandið verður. Sigrún Davíðsdóttir:
Fólki fannst fjarstæðukennt fyrir nokkrum árum að hugsa til þess að deila húsnæði sínu með ókunnugu fólki. Hví ætti það þá ekki að geta hugsað sér að deila bíl sínum til og frá vinnu með öðrum sem eiga erindi á sama stað? Þetta segir Arndís Kristjánsdóttir sem hefur ásamt öðrum þróað app fyrir þá sem vilja samnýta ferðir á höfuðborgarsvæðinu. Hún er meðal þeirra sem tala á málþingi í ráðhúsi Reykjavíkur í vikunni í tilefni af samgönguviku. Ásrún Brynja Ingvarsdóttir fór yfir þetta.
Spotify bjó nýlega til algóriþma sem hefur greint öll lög í gagnagrunni tónlistarveitunnar, 35 milljón talsins, og gefið hverju þeirra einkunn á bilinu frá 0 til 1 út frá því hvaða tilfinningar þær vekja hjá hlustanda. En tölvuforrit hafa ekki tilfinningar, upplifa aldrei fortíðarþrá, hafa aldrei misst eða orðið ástfangin - hvernig eiga
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

467 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

142 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

4 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

30 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners